Ungmennaráð Fjallabyggðar

45. fundur 13. febrúar 2026 kl. 10:30 - 11:30 Bylgjubyggð 2b, Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Hilmir Darri Kristinsson Aðalmaður
  • Björn Helgi Ingimarsson Aðalmaður
  • Jasmín Þóra Harrimache Aðalmaður
Starfsmenn
  • Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir Sviðsstjóri

1.Bæjarstjórnarfundur unga fólksins 2026

Málsnúmer 2602026Vakta málsnúmer

Undirbúningur fyrir fund með bæjarstjórn.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar
Ungmennaráð óskar eftir því að fundi með bæjarstjórn verði frestað fram í miðjan apríl.

2.Þú ert frábær - fyrirlestur

Málsnúmer 2602015Vakta málsnúmer

Fyrirlesturinn Peppandi
Lagt fram til kynningar
Kristján frá Peppandi kom í haust með erindi og voru nemendur almennt ánægðir með hann.

3.Raddir ungs fólks - samtal við ráðamenn

Málsnúmer 2602027Vakta málsnúmer

ÍSÍ, UMFÍ, Svæðisstöðvar íþróttahéraða og Ungmennaráð UMFÍ vinnur um þessar mundir að landsverkefninu Raddir ungs fólks - samtal við ráðamenn, sem snýst um að skapa vettvang fyrir ungt fólk til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri um íþrótta- og æskulýðsstarf í samtali við ráðafólk og sveitarfélög á sínu landssvæði.
Í verkefninu er gert ráð fyrir að halda svæðisbundna samtalsfundi víðs vegar um landið á vormánuðum 2026. Óskað er eftir þátttöku ungmennaráða.
Afgreiðslu frestað
Ákveðið að fresta ákvörðun um þátttöku þar til fleiri nefndarmenn hafa tekið afstöðu.

4.Kynning frá fulltrúum ungmennaráðs

Málsnúmer 2601043Vakta málsnúmer

Fulltrúar MTR kynna heimsókn til Svíþjóðar
Afgreiðslu frestað
Nefndamenn MTR boðuðu forföll.

5.Ungmennaráð - önnur mál 2026

Málsnúmer 2602016Vakta málsnúmer

Ungmennaráð ræðir ýmis mál sem brenna á ráðinu hverju sinni.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Rætt um skólamat og að passað sé uppá að nægjanlegur matur sé alltaf. Einnig rætt að stundum sjá nefndarmenn að mat er hent af nemendum. Hafa keppni milli bekkja um minnstu matarsóunina og einhver verðlaun fyrir t.d. pizzu veislu.
Ræddum um fyrirhugað ungmennaþing á Húsavík í apríl, samstarf ungmennaráða á svæðinu og fleira.

Fundi slitið - kl. 11:30.