Stýrihópur Heilsueflandi samfélags

15. fundur 16. desember 2020 kl. 14:30 - 15:30 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Þórarinn Hannesson fulltrúi UÍF
  • María Bjarney Leifsdóttir fulltrúi leik- og grunnskóla
Starfsmenn
  • Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála
Fundargerð ritaði: Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála
Guðrún Helga Kjartansdótti boðaði forföll og varamaður hennar einnig. Björn Þór Ólafsson mætti ekki á fund.

1.Fundadagatöl 2021

Málsnúmer 2011044Vakta málsnúmer

Deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála lagði fram hugmynd að dagsetningum funda hjá stýrihópi HSAM fyrir árið 2021. Áætlað er að halda 6 fundi á árinu og er fundartími á fimmtudögum kl. 15:00.

2.Heilsueflandi samfélag - staðan og næstu skref

Málsnúmer 1804004Vakta málsnúmer

Lagt fram skeyti frá Embætti landlæknis þar sem kynnt er ýmist efni tengt heilsueflingu. Þar á meðal eru ráðleggingar embættisins "Síðdegishressing í heilsdagsskólum, frístunda- og æskulýðsstarfi - Ráðleggingar um matarframboð". Skjalið hefur þegar verið sent í Leik- og Grunnskóla Fjallabyggðar en stýrihópurinn leggur til að áðurnefndar ráðleggingar verði sendar foreldrum grunnskólabarna með hvatningu um að vanda val á morgunnesti barnanna. Stýrihópur HSAM í Fjallabyggð vill nota tækifærið og hvetja til almennrar neyslu á hollu fæði s.s. ávöxtum og grænmeti og bendir á í því sambandi að í mörgum skólum er boðið upp á ávaxtaáskrift í stað morgunnestis til að auka neyslu barna á ávöxtum.

3.Vinnusvæði sveitarfélaga v. Heilsueflandi samfélags.

Málsnúmer 2009065Vakta málsnúmer

Vinnu við gátlista frestað.

Fundi slitið - kl. 15:30.