Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar

179. fundur 04. mars 2015 kl. 17:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Guðmundur J Skarphéðinsson formaður, F lista
  • Nanna Árnadóttir aðalmaður, S lista
  • Brynja Ingunn Hafsteinsdóttir aðalmaður, D lista
  • Jón Valgeir Baldursson aðalmaður, B lista
  • Kristjana Rannveig Sveinsdóttir varamaður, S lista
  • Ármann Viðar Sigurðsson deildarstjóri tæknideildar
  • Íris Stefánsdóttir tæknifulltrúi
Fundargerð ritaði: Íris Stefánsdóttir Tæknifulltrúi

1.Bjórverksmiðja, Vetrarbraut 8-10 Siglufirði

Málsnúmer 1502119Vakta málsnúmer

Sunna ehf. sækir um leyfi til breytinga á húsnæði við Vetrarbraut 8-10. Lagðar voru fram teikningar af fyrirhuguðum breytingum.

Erindi samþykkt.

2.Samstarf í umhverfismálum 2015

Málsnúmer 1503005Vakta málsnúmer

Sjálfboðaliðasamtökin SEEDS óska eftir samstarfi Fjallabyggðar sumarið 2015 sem felur í sér að fá sjálfboðaliðahópa til að fegra umhverfið í kringum fyrirtæki í bænum, hreinsa fjörur í sveitarfélaginu og önnur tilfallandi verkefni. Í kynningarbréfi samtakanna kemur fram að samstarfsaðilinn útvegar fæði, húsnæði og einhverja afþreyingu á meðan verkefninu stendur.

Nefndin tekur vel í erindið og felur tæknideild að finna verkefni sem henta samtökunum og hver hugsanlegur kostnaður gæti verið.

3.Umsókn um lóð sunnan Aðalgötu 15, Siglufirði

Málsnúmer 1502127Vakta málsnúmer

Eigandi neðri hæðar við Aðalgötu 15, Siglufirði óskar eftir að fá úthlutað lóð sunnan við Aðalgötu 15 þar sem fyrirhugað er að byggja tvöfaldan bílskúr.

Nefndin hafnar beiðni um lóð sunnan Aðalgötu 15, en leggur til að bílskúrinn verði byggður innan lóðarmarka Aðalgötu 15.

4.Breyting á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2009-2021: Deplar í Austur Fljótum: Landbúnaðarsvæði verður verslunar og þjónustusvæði.

Málsnúmer 1503003Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf og uppdráttur frá Sveitarfélaginu Skagafirði vegna tillögu að aðalskipulagsbreytingu innan sveitarfélagsins.

Nefndin gerir ekki athugasemdir við tillöguna.

5.Breyting á aðalskipulagi Fjallabyggðar - Leirutangi

Málsnúmer 1503007Vakta málsnúmer

Lögð fram endurbætt skipulagslýsing fyrir breytingar á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008-2028 og deiliskipulag Leirutanga sbr. bókun 177. fundar nefndarinnar vegna máls nr.1501084.
Einnig eru lögð fram drög að breytingarblaði vegna breytingar á aðalskipulagi.

Nefndin samþykkir lýsinguna og felur tæknideild að framlengja umsagnartíma hennar, kynna hana fyrir almenningi og leita umsagnar um hana hjá Skipulagsstofnun og umsagnaraðilum, í samræmi við 1. mgr. 30. og 1. og 3. mgr. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Nefndin samþykkir einnig drög að breytingarblaði og felur tæknideild að kynna þau almenningi í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

6.Deiliskipulag Leirutanga

Málsnúmer 1501084Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að tillögu deiliskipulags Leirutanga.

Nefndin samþykkir að gögn þessi verði kynnt almenningi í samræmi við 4.mgr. 40.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Fundi slitið.