Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar

176. fundur 28. janúar 2015 kl. 17:00 Ólafsvegi 4, Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Guðmundur J Skarphéðinsson formaður, F lista
  • Nanna Árnadóttir aðalmaður, S lista
  • Brynja Ingunn Hafsteinsdóttir aðalmaður, D lista
  • Jón Valgeir Baldursson aðalmaður, B lista
  • Kristjana Rannveig Sveinsdóttir varamaður, S lista
  • Ármann Viðar Sigurðsson deildarstjóri tæknideildar
  • Íris Stefánsdóttir tæknifulltrúi
Fundargerð ritaði: Íris Stefánsdóttir Tæknifulltrúi

1.Endurskoðun Aðalskipulags Fjallabyggðar 2008-2028

Málsnúmer 1408028Vakta málsnúmer

Deildarstjóri tæknideildar óskar eftir því við nefndina að gengið verði frá samning við Teiknistofu arkitekta, Gylfa Guðjónsson og félaga ehf. vegna vinnu við endurskoðun aðalskipulags Fjallabyggðar.

Samþykkt.

2.Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 1412044Vakta málsnúmer

Sigtryggur Kristjánsson sækir um leyfi til að byggja sólskála við íbúðarhús sitt á Fossvegi 6, Siglufirði. Lögð var fram umsókn ásamt samþykki nágranna.

Erindi samþykkt.

3.Beitarhólf-Lambafen 1 Siglufirði

Málsnúmer 1501023Vakta málsnúmer

Haraldur Björnsson sækir um beitarhólf fyrir fjáreigendur að Lambafeni 1, Siglufirði. Svæðið sem um ræðir eru allar sléttur norðan vegarins sem liggur upp að hesthúsunum og austan vegar hjá Steinaflötum.

Umrætt svæði er nú þegar í notkun og er beiðninni hafnað. Nefndin er tilbúin að skoða aðra lausn fyrir fjárbændur og er formanni falið að ræða við umsækjanda.

4.Hindrun til að verja hús við Eyrarflöt 1,3 og 5 - Siglufirði

Málsnúmer 1409062Vakta málsnúmer

Lögð var fram tillaga og kostnaðaráætlun fyrir hindrun til að verja hús við Eyrarflöt sem liggja við Langeyrarveg. Lagt er til að notast verði við hlaðið grjót í vírneti og er heildarkostnaður um 2 milljónir. Nefndin vísar því til bæjarráðs að farið verði í þessa framkvæmd strax í vor.

5.Endurnýjun lóðarleigusamninga

Málsnúmer 1501082Vakta málsnúmer

Rakel Björnsdóttir óskar eftir endurnýjun lóðarleigusamninga fyrir Suðurgötu 56 og Háveg 49 þar sem núverandi samningar eru útrunnir.
Lagðir voru fram endurnýjaðir lóðarleigusamningar.

Erindi samþykkt.

6.Tillaga að Landsskipulagsstefnu 2015 - 2026

Málsnúmer 1412054Vakta málsnúmer

Skipulagsstofnun óskar eftir umsögn um tillögur að Landsskipulagsstefnu 2015 - 2026 sem er nú til kynningar ásamt umhverfismati í samræmi við lög nr. 123/2010 og 105/20016 og reglugerð nr. 1001/2011. Frestur til að skila athugasemdum er til 13. febrúar 2015.

Nefndin mun kynna sér tillöguna og koma með athugasemdir ef þörf þykir.

7.Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Norðurlands vestra 2015

Málsnúmer 1501021Vakta málsnúmer

Fundargerð frá 5.janúar 2015 lögð fram til kynningar.

8.Rekstraryfirlit nóvember 2014

Málsnúmer 1412053Vakta málsnúmer

Rekstraryfirlit fyrir fyrstu 11 mánuði ársins lagt fram til kynningar.

Fundi slitið.