Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar

164. fundur 29. janúar 2014 kl. 16:30 - 16:30 á bæjarskrifstofum Ólafsvegi 4, Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Helga Jónsdóttir formaður
  • Jón Árni Konráðsson aðalmaður
  • Hilmar Þór Elefsen aðalmaður
  • Sigríður V. Vigfúsdóttir varamaður
  • Ármann Viðar Sigurðsson deildarstjóri tæknideildar
  • Arnar Freyr Þrastarson tæknifulltrúi
Fundargerð ritaði: Arnar Freyr Þrastarson tæknifulltrúi

1.Deiliskipulag - Vesturtangi

Málsnúmer 1310054Vakta málsnúmer

Deiliskipulag fyrir Vesturtanga á Siglufirði var auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá 16. desember 2013 til og með 27. janúar 2014. Deiliskipulagssvæðið er um fimm þúsund fermetrar að stærð og afmarkast af Snorragötu í vestri, Suðurtanga í norðri og fyrirhugaðri framlengingu Vesturtanga í austri. Svæðið er skilgreint sem athafnasvæði í gildandi aðalskipulagi. Innan skipulagssvæðisins er gert ráð fyrir tveimur lóðum undir sjálfsafgreiðslustöðvar fyrir eldsneyti. Á auglýsingatíma barst ein athugasemd frá N1 hf.

Nefndin tekur undir athugasemd N1 og samþykkir að gerðar verði eftirfarandi breytingar: Aðkoma frá Snorragötu að vestan og Vesturtanga að austan, að lóðunum færist sunnar. Hámarkshæð mannvirkja innan byggingarreits A verði 5,5 metrar og að staðsettur verði nýr byggingarreitur, B, á lóðunum fyrir tæknirými.

Með gerðum breytingum samþykkir nefndin að deiliskipulagið verði sent til Skipulagsstofnunar til yfirferðar og felur tæknideild að senda svör við athugasemdum til þeirra sem sendu inn athugasemdir.

2.Umsókn um byggingarleyfi, Hólkot 17

Málsnúmer 1401094Vakta málsnúmer

Börkur Þór Ottósson fyrir hönd Fanneyjar Sigurðardóttur, lóðarhafa Hólkots 17 sækir um leyfi fyrir byggingu 54,5 m2 einbýlishúss á lóðinni samkvæmt meðfylgjandi teikningum.

 

Erindi samþykkt með fyrirvara um leyfi Fiskistofu þar sem fyrirhuguð bygging er innan við 100 metra frá Ólafsfjarðarvatni.

3.Umsókn um leyfi til útlitsbreytinga á Óskarsgötu 7

Málsnúmer 1401130Vakta málsnúmer

Rúnar Marteinsson fyrir hönd Primex ehf sækir um leyfi til útlitsbreytinga á verksmiðju fyrirtækisins við Óskarsgötu 7. Breytingarnar felast í því að hurð á norðurhlið hússins verður lokað og önnur hurð gerð á austurhlið þess.

 

Sigríður V. Vigfúsdóttir vék af fundi undir þessum lið.

 

Erindi samþykkt með fyrirvara um að fullnægjandi teikningar berist.

4.Lóðarleigusamningar, Ránargata 1b og 3b

Málsnúmer 1401109Vakta málsnúmer

Lagðir fram lóðarleigusamningar vegna Ránargötu 1b og 3b.

 

Erindi samþykkt.

5.Aðalfundur Samorku 21. febrúar 2014

Málsnúmer 1401086Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá Samorku þar sem fram kemur að 19. aðalfundur samtakanna verður haldinn föstudaginn 21. febrúar 2014.

 

Nefndin samþykkir að deildarstjóri tæknideildar sitji fundinn.

6.Boð um þáttöku í samráðsvettvangi vegna mótunar landsskiplagsstefnu 2015 - 2016

Málsnúmer 1401093Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Skipulagsstofnun um boð um þátttöku í samráðsvettvangi vegna mótunar landsskipulagsstefnu 2015-2026.

 

Nefndin vísar erindinu til bæjarráðs.

7.Fundargerðir Samvinnunefndar um svæðisskipulag Eyjafjarðar

Málsnúmer 1401063Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir 34., 35. og 36. funda Samvinnunefndar um svæðisskipulag Eyjafjarðar.

8.Rekstraryfirlit nóvember 2013

Málsnúmer 1401041Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 16:30.