Boð um þáttöku í samráðsvettvangi vegna mótunar landsskiplagsstefnu 2015 - 2016

Málsnúmer 1401093

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 164. fundur - 29.01.2014

Lagt fram erindi frá Skipulagsstofnun um boð um þátttöku í samráðsvettvangi vegna mótunar landsskipulagsstefnu 2015-2026.

 

Nefndin vísar erindinu til bæjarráðs.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 331. fundur - 04.02.2014

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur falið Skipulagsstofnun að vinna tillögu að landsskipulagsstefnu í samræmi við ákvæði skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsstofnun býður til samráðs og þátttöku fyrir 10. febrúar n.k. Starfsmenn tæknideildar eru hvattir til að taka þátt í verkefninu.