Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar

144. fundur 26. september 2012 kl. 16:30 - 16:30 á bæjarskrifstofum Ólafsvegi 4, Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Magnús Albert Sveinsson varaformaður
  • Jón Árni Konráðsson aðalmaður
  • Hilmar Þór Elefsen aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir formaður
  • Ármann Viðar Sigurðsson Deildarstjóri Tæknideildar
  • Arnar Freyr Þrastarson tæknifulltrúi
Fundargerð ritaði: Arnar Freyr Þrastarson tæknifulltrúi

1.Breytingar á nefndarskipan

Málsnúmer 1209028Vakta málsnúmer

Á 80. fundi bæjarstjórnar Fjallabyggðar var tilkynnt um nefndarbreytingu. Aðalmaður og formaður skipulags- og umhverfisnefndar verður í stað Kristins Gylfasonar B-lista, Helga Jónsdóttir B-lista og varamaður fyrir Helgu Jónsdóttur verður Ingvar Erlingsson B-lista.

 

Nefndin þakkar Kristni Gylfasyni vel unnin störf.

2.Áskorun um að fella niður breytingar vegna lagningar á Suðurgötunni

Málsnúmer 1209080Vakta málsnúmer

Lagður fram undirskriftarlisti íbúa við Suðurgötu á Siglufirði sem mótmæla harðlega þeirri breytingu sem samþykkt var á 124. fundi skipulags- og umhverfisnefndar um að banna ætti lögn bifreiða á austurkanti götunnar frá Suðurgötu 77 til norðurs að gatnamótum við Laugarveg, en leyfa hana á vesturkanti á sama kafla. Bent er á að mikill bílastæðavandi er frá Suðurgötu 42 til Suðurgötu 59. Við áðurnefnda breytingu fækkar stæðunum enn frekar auk þess sem bílaumferðin sé hrakin upp að gangstéttarbrúninni.

 

Nefndin bókar að tvær forsendur voru fyrir breytingu á lögn bifreiða við Suðurgötu. Talin er vera minni slysahætta ef ekki er lagt við gangstétt auk þess sem snjómokstur verður auðveldari fyrir vikið. Nefndin vill láta reyna á þetta fyrirkomulag til vors.

 

Hilmar Elefsen bókar að hann vilji láta fella þessa breytingu úr gildi.

3.Drög að heildstæðu frumvarpi til náttúruverndarlaga

Málsnúmer 1209023Vakta málsnúmer

Umhverfisráðuneytið óskar eftir umsögn um drög að heildstæðu frumvarpi til náttúruverndarlaga. Drögin byggja á hvítbók um löggjöf til verndar náttúru Íslands. Óskar ráðuneytið eftir því að umsögn berist í síðasta lagi 25. september.

 

Engar athugasemdir voru gerðar við drögin.

4.Grunnskóli Siglufirði, teikningar

Málsnúmer 1209078Vakta málsnúmer

Lagðar fram byggingarnefndarteikningar fyrir stækkun grunnskólans við Norðurgötu á Siglufirði.

 

Erindi samþykkt.

5.Lóðarleigusamningur, Hverfisgata 15

Málsnúmer 1209090Vakta málsnúmer

Lagður fram nýr lóðarleigusamningur fyrir Hverfisgötu 15 á Siglufirði .

Erindi samþykkt.

6.Málefni Kirkjuvegar 16

Málsnúmer 1208036Vakta málsnúmer

Eigendur Kirkjuvegar 16 sækja um breytingar á húseigninni samkvæmt meðfylgjandi teikningum. Að auki er lagður fram nýr lóðarleigusamningur fyrir húseignina.

 

Erindi samþykkt.

7.Tillögur að lóðarstærð og staðsetningu og umsókn um leyfi til hótelbyggingar við Snorragötu

Málsnúmer 1207064Vakta málsnúmer

Lagður fram lóðarleigusamningur fyrir áætlaða hótelbyggingu að Snorragötu 3.

 

Erindi samþykkt.

8.Umferðaröryggi í Fjallabyggð - Minnisblað

Málsnúmer 1209018Vakta málsnúmer

Lögð fram greinargerð frá Vegagerðinni um umferðaröryggi á Siglufirði og í Ólafsfirði.

 

Nefndin samþykkir gerð biðstöðva og miðeyja við gangbrautir samkvæmt framlagðri greinargerð sem unnin er í tengslum við umferðaröryggisáætlun Fjallabyggðar, en þeirri vinnu er ekki lokið.

9.Sólskáli - Suðurgata 58

Málsnúmer 1110057Vakta málsnúmer

Eigandi húseignarinnar að Suðurgötu 58 sækir um að byggja sólskála á suður- og vesturhlið hússins samkvæmt meðfylgjandi teikningu.

 

Erindi samþykkt með fyrirvara um að endanlegar teikningar berist sem og skráningartafla.

10.Umsókn um framkvæmdaleyfi

Málsnúmer 1207050Vakta málsnúmer

Á 141. fundi skipulags- og umhverfisnefndar var framkvæmdaleyfi fyrir væntanlegri Hálsalyftu á skíðasvæðinu í Skarðsdal samþykkt með fyrirvara um að nánari teikningar og hönnun af undirstöðum myndi berast.

Lagðar eru fram til kynningar teikningar af undirstöðum væntanlegrar lyftu.

 

Erindi samþykkt.

11.Umsókn um leyfi til breytinga á húsnæði Knolls ehf

Málsnúmer 1209081Vakta málsnúmer

Guðmundur Garðarsson fyrir hönd Knolls ehf. sækir um leyfi til útlitsbreytinga á efri hæð húsnæðis Knolls ehf. að Múlavegi 7 samkvæmt meðfylgjandi teikningu.

 

Erindi samþykkt.

12.Umsókn um leyfi til byggingu svala

Málsnúmer 1209072Vakta málsnúmer

Sigurður Hlöðversson sækir um fyrir hönd húseiganda að Hvanneyrarbraut 59 leyfi til byggingu svala og staðsetningu hurðar vegna flóttaleiðar úr risi.

 

Erindi samþykkt.

13.Umsókn um námuleyfi og leyfi fyrir undirbúningsvinnu vegna hótelbyggingar

Málsnúmer 1209107Vakta málsnúmer

Gunnar St. Ólafsson fyrir hönd Selvíkur ehf. sækir um leyfi til að hefja framkvæmdir við fyllingu undir væntanlegt hótel í samræmi við hönnun Siglingastofnunar. Einnig er sótt um leyfi til námuvinnslu í námu við Selgil.

 

Erindi samþykkt.

14.Notkun vélknúinna ökutækja við leitir

Málsnúmer 1209012Vakta málsnúmer

Umhverfissstofnun sendir inn bréf er varðar notkun vélknúinna ökutækja við leitir. Umhverfisstofnun hvetur þá sem skipuleggja leitir að upplýsa viðkomandi aðila um þær reglur sem gilda um notkun vélknúinna ökutækja í náttúru Íslands til þess að komast megi hjá spjöllum.

 

Lagt fram til kynningar.

15.Tilkynning um sölu á jörðinni Bakka í Ólafsfirði

Málsnúmer 1209091Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar sala á jörðinni Bakka í Ólafsfirði.

Fundi slitið - kl. 16:30.