Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar

135. fundur 25. apríl 2012 kl. 17:00 - 17:00 í Ráðhúsinu Gránugötu 24 Siglufirði
Nefndarmenn
  • Kristinn Gylfason formaður
  • Magnús Albert Sveinsson varaformaður
  • Jón Árni Konráðsson aðalmaður
  • Hilmar Þór Elefsen aðalmaður
  • Ingvi Óskarsson varamaður
  • Valur Þór Hilmarsson garðyrkju- og umhverfisfulltrúi
  • Ármann Viðar Sigurðsson Deildarstjóri Tæknideildar
Fundargerð ritaði: Ármann Viðar Sigurðsson Deildarstjóri tæknideildar

1.Gámur við Brimnes

Málsnúmer 1110030Vakta málsnúmer

Sigurjón Magnússon óskar eftir leyfi til að framlengja leyfi fyrir geymslugám sem staðsettur er á lóð Brimnes, ofan og austan við skemmu.

Erindi samþykkt og leyfi veitt til 31. maí 2013

2.Opin svæði í Fjallabyggð 2012

Málsnúmer 1203074Vakta málsnúmer

Umhverfisfulltrúi hefur unnið hugmyndir að verkefnum fyrir opin svæði í Fjallabyggð.

Nefndin fór yfir tillögur umhverfisfulltrúa að verkefnum á opnum svæðum í Fjallabyggð og tekur vel í þær. 

3.Skilti með vörumerki Black Death á gafla hússins að Tjarnargötu 14

Málsnúmer 1203032Vakta málsnúmer

Tæknideild f.h. umhverfis- og skipulagsnefndar óskaði eftir umsögn sýslumanns um hvort skilti sem Valgeir T. Sigurðsson sótti um að fá að setja á gafl hússins að Tjarnargötu 14, Siglufirði standist reglugerð um bann við áfengisauglýsingu.

Umsögn hefur borist frá sýslumanni þar sem sýslumaður telur að erindið eigi ekki undir embættið.

Nefndin vísar erindinu til lögreglustjóra.

 

4.Skilti við snjóflóðagarða

Málsnúmer 1204061Vakta málsnúmer

Unnið er að gerð skilti sem sett verður upp við snjóflóðagarðinn á Ólafsfirði.

Nefndin felur umhverfisfulltrúa að klára vinnu við texta vegna útivistasvæðis.

 

5.Umsókn um staðsetningu á frístundahúsi í landi Hólkots

Málsnúmer 1204051Vakta málsnúmer

Sigurjón Magnússon óskar eftir að fá úthlutað lóð nr. 1 í frístundabyggðinni í landi Hólkots og að aðkoma inn á lóðina verði að sunnanverðu.  Einnig er óskað eftir leyfi til að setja niður frístundahús á lóðinni, sem er hæð og ris gamla íbúðarhússins að Vatnsenda í Ólafsfirði.

Nefndin samþykkir að úthluta lóðinni undir umrætt hús en hafnar varanlegum afleggjara að sunnanverðu sem ekki er á skipulagi.

6.Veggur á lóðamörkum

Málsnúmer 1204062Vakta málsnúmer

Svanhildur Björnsdóttir fer fram á að stoðveggur sem er á lóðarmörkum Hlíðarvegar 9 og Hólavegar verði endurbyggður sem fyrst.  Veggurinn er mjög illa farinn og við það að brotna inn í garðinn að Hlíðarvegi 9, skv. meðfylgjandi myndum.

Nefndin felur tæknideild að kanna málið með hliðsjón af reglum um stoðveggi í Fjallabyggð.

7.Pallur við hús

Málsnúmer 1204077Vakta málsnúmer

Helgi Reynir Árnason óskar eftir leyfi til að byggja sólpall við hús sitt að Ólafsvegi 1-3 samkvæmt meðfylgjandi teikningu.

Erindi samþykkt.

8.Pallur við hús

Málsnúmer 1204076Vakta málsnúmer

Arnar Óli Jónsson óskar eftir leyfi til að byggja sólpall við hús sitt að Hlíðarvegi 13 samkvæmt meðfylgjandi teikningu.

Erindi samþykkt.

 

9.Umsókn um leyfi til að byggja sólpall og skjólveggi að Gunnólfsgötu 2 Ólafsfirði

Málsnúmer 1204069Vakta málsnúmer

Gunnlaugur Ingi Haraldsson óskar eftir leyfi til að byggja sólpall við hús sitt að Gunnólfsgötu 2 samkvæmt meðfylgjandi teikningu.

Erindi samþykkt.

10.Reiðskemma Ólafsfirði

Málsnúmer 1108046Vakta málsnúmer

Hestamannafélagið Gnýfari óskar eftir að byggingarreitur að Faxavöllum 2, Ólafsfirði þar sem félagið mun reisa reiðskemmu verði færður átta metra til austurs.

Erindi samþykkt.

11.Samráðsfundur Skipulagsstofnunar, Samb. ísl. sveitarfélaga og sveitarfélaga

Málsnúmer 1204016Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 17:00.