Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar

37. fundur 13. nóvember 2017 kl. 17:00 - 18:30 Ólafsvegi 4, Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Ásgeir Logi Ásgeirsson formaður, D lista
  • Hanna Sigríður Ásgeirsdóttir aðalmaður, D lista
  • Ægir Bergsson varaformaður, S lista
  • Helga Jónsdóttir áheyrnarfulltrúi, B lista
  • Sæbjörg Ágústsdóttir varamaður, S lista
  • Valur Þór Hilmarsson varamaður, S lista
Starfsmenn
  • Linda Lea Bogadóttir markaðs- og menningarfulltrúi
  • Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála
Fundargerð ritaði: Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála

1.Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2018

Málsnúmer 1709033Vakta málsnúmer

Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar ákveður að auglýsa eftir umsóknum og/eða rökstuddum ábendingum um bæjarlistamann Fjallabyggðar 2018. Umsóknir eða ábendingar skulu berast til sveitarfélagsins fyrir 6. desember 2017, með bréfi eða í tölvupósti á netfang markaðs- og menningarfulltrúa; lindalea@fjallabyggd.is. Reglur um tilnefningu bæjarlistamanns má finna á heimasíðu Fjallabyggðar.

2.Jól og áramót 2017/2018

Málsnúmer 1710086Vakta málsnúmer

Ægir Bergsson vék af fundi undir þessum lið.
Markaðs- og menningarfulltrúi fór yfir hugsanlega samninga varðandi atburði í kring um jól og áramót í Fjallabyggð. Nefndin leggur til hækkun um kr. 50.000 á samningum um brennur og flugeldasýningar. Nefndin leggur einnig til að samræma upphæðir fyrir sambærilega þjónustu.

3.Örnefnafélagið Snókur - heimasíða

Málsnúmer 1711018Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Örnefnafélaginu Snók um að heimasíðan snokur.is verði vistuð undir vefsíðu Fjallabyggðar. Markaðs- og menningarnefnd tekur jákvætt í erindið og leggur til að sveitarfélagið verði við óskinni.

4.Ráðstefna um ferðamál - eftirfylgni

Málsnúmer 1706057Vakta málsnúmer

Umræða varð um áherslupunkta frá stöðufundi með ferðaþjónustuaðilum 20. september s.l. Ákveðið að fresta afgreiðslu til næsta fundar.

5.Norræna strandmenningarhátíðin 2018

Málsnúmer 1501100Vakta málsnúmer

Mánudag 6. nóvember síðastliðinn var haldinn kynningarfundur vegna Norrænu strandmenningarhátíðarinnar sem fyrirhuguð er á Siglufirði 4.-8.júlí 2018. Fundurinn var vel sóttur og farið var yfir umfang hátíðarinnar. Markaðs- og menningarnefnd leggur til að dagsetningu Trilludaga 2018 verði hagrætt þannig að þeir falli að Norrænu strandmenningarhátíðinni.

Fundi slitið - kl. 18:30.