Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar

36. fundur 17. október 2017 kl. 17:00 - 18:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Ásgeir Logi Ásgeirsson formaður, D lista
  • Hanna Sigríður Ásgeirsdóttir aðalmaður, D lista
  • Ægir Bergsson varaformaður, S lista
  • Jakob Kárason aðalmaður, S lista
  • Helga Jónsdóttir áheyrnarfulltrúi, B lista
  • Sæbjörg Ágústsdóttir varamaður, S lista
Starfsmenn
  • Linda Lea Bogadóttir markaðs- og menningarfulltrúi
  • Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála
Fundargerð ritaði: Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála
Fundurinn er endurtekinn frá 4. október s.l. þar sem ekki náðist lögleg mæting nefndarmanna. Aðeins 2 nefndarmenn sátu fundinn og áheyrnarfulltrúi.

1.Norræna strandmenningarhátíðin 2018

Málsnúmer 1501100Vakta málsnúmer

Formaður kynnti fundarmönnum Norrænu strandmenningarhátíðina 2018 sem fyrirhugað er að haldin verði á Siglufirði 4.-8. júlí n.k. Ljóst er að umfang hátíðarinnar er mikið. Umræða varð um strandmenningarhátíðina og um nauðsyn þess að samræma upplýsingagjöf um viðburðinn. Um síðustu helgi kom sendinefnd til Siglufjarðar til að skoða aðstæður. Markaðs- og menningarnefnd vísar í erindi Anítu Elefsen f.h. starfshóps um norrænu strandmenningarhátíðina um sameiginlegan fund og hvetur til slíks samráðsfundar sem fyrst.

2.Hátíðir í Fjallabyggð 2017

Málsnúmer 1708060Vakta málsnúmer

Markaðs- og menningarfulltrúi lagði fram og fór yfir skýrslur og uppgjör vegna sjómannadagshátíðar, Trilludaga, 17.júní hátíðar og Berjadaga. Einnig var skýrsla um sumarstarf Þjóðlagaseturs sr. Bjarna Þorsteinssonar lögð fram til kynningar. Nefndin þakkar forsvarsmönnum hátíðanna fyrir uppgjör og skýrslur sem borist hafa.

3.Ráðstefna um ferðamál - eftirfylgni

Málsnúmer 1706057Vakta málsnúmer

Markaðs- og menningarfulltrúi fór yfir athugasemdir og áhersluatriði sem fram komu á stöðufundi markaðs- og menningarnefndar með fulltrúum ferðaþjónustuaðila frá 20.september s.l. Nefndin felur markaðs- og menningarfulltrúa að flokka enn frekar og kostnaðargreina þá þætti sem lúta að sveitarfélaginu.

4.Samkomulag milli Tjarnarborgar og listamanna á vegum Listhús um afnot af húsinu veturinn 2017-2018

Málsnúmer 1709092Vakta málsnúmer

Markaðs- og menningarfulltrúi kynnti fundarmönnum drög samkomulagi milli Tjarnarborgar og listamanna á vegum Listhús um afnot af menningarhúsinu veturinn 2017-2018. Markaðs- og menningarnefnd samþykkir drögin fyrir sitt leyti.

5.Upplýsingamiðstöð ferðamála, innsent erindi

Málsnúmer 1709062Vakta málsnúmer

Tekið fyrir innsent erindi frá Bylgju Hafþórsdóttur sumarstarfsmanni upplýsingamiðstöðvar ferðamanna þar sem hún bendir á það sem betur má fara í þjónustu fyrir ferðamenn í Fjallabyggð. Nefndin þakkar Bylgju fyrir ábendingarnar og mun taka þær til greina í tengslum við dagskrárlið 3.

Fundi slitið - kl. 18:00.