Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar

1. fundur 28. október 2013 kl. 17:00 - 18:45 í Ráðhúsinu Gránugötu 24 Siglufirði
Nefndarmenn
  • Ingvar Erlingsson formaður
  • Arndís Erla Jónsdóttir aðalmaður
  • Guðrún Unnsteinsdóttir aðalmaður
  • Ægir Bergsson aðalmaður
  • Sæbjörg Ágústsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Egill Rögnvaldsson varamaður
  • Ólafur Þór Ólafsson skrifstofu- og fjármálastjóri
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson skrifstofu- og fjármálastjóri
Formaður bauð nýkjörna nefndarmenn velkomna.
Sólrún Júlíusdóttir boðaði forföll, og í hennar stað mætti Egill Rögnvaldsson.

1.Drengskaparheit um þagnarskyldu

Málsnúmer 1308008Vakta málsnúmer

Nefndarmenn undirrituðu drengskaparheit um þagnarskyldu.

2.Erindisbréf markaðs- og menningarnefndar

Málsnúmer 1310014Vakta málsnúmer

93. fundur bæjarstjórnar samþykkti að vísa drögum að erindisbréfi markaðs- og menningarnefndar til umfjöllunar í bæjarráði og í framhaldi af því til markaðs- og menningarnefndar.

Á 317. fundi bæjarráðs var samþykkt að vísa drögum að erindisbréfi til umfjöllunar í markaðs- og menningarnefnd.

Erindisbréf yfirfarið og lagfært. Svo breytt samþykkt.

3.Málefni Tjarnarborgar

Málsnúmer 1310065Vakta málsnúmer

Á fund nefndarinnar kom forstöðumaður Tjarnarborgar Anna María Guðlaugsdóttir og fór yfir starfsemina.

4.Jól og áramót 2013

Málsnúmer 1310076Vakta málsnúmer

Rætt um fyrirkomulag og viðburðarhald um jól og áramót, brennur, flugeldasýningar og jólatréstendrun.

Markaðs- og menningarnefnd leggur til að kveikt verði á jólatrjám í Fjallabyggð 30. nóvember á Siglufirði og 1. desember í Ólafsfirði.

5.100 ára kaupstaðarafmæli Siglufjarðar 20. maí 2018

Málsnúmer 1305050Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi formanns Vildarvina Siglufjarðar og formanns Siglfirðingafélagsins þar sem sveitarfélagið er kvatt til þess að standa vel að 100 ára kaupstaðarafmæli Siglufjarðarkaupstaðar 20. maí 2018 og að skipuð verði afmælisnefnd til að vinna að undirbúningi.

296. fundur bæjarráðs samþykkti að vísa erindinu til umfjöllunar menningarnefndar, nú markaðs- og menningarnefndar.


Markaðs- og menningarnefnd þakkar ábendingu og tekur jákvætt í erindið.

6.Styrkumsóknir 2014 - Menningarmál

Málsnúmer 1309009Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir umsóknir um menningarstyrki.

 



7.Fjárhagsáætlun 2014 og 2015 - 2017

Málsnúmer 1304016Vakta málsnúmer

Farið var yfir úthlutaðan ramma fjárhagsáætlunar og tillögur forstöðumanna og deildarstjóra sem fram voru komnar.

8.Rekstraryfirlit ágúst 2013

Málsnúmer 1310021Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar rekstraryfirlit janúar til ágúst 2013 vegna menningarmála og atvinnu- og ferðamála.

9.Menningar- og safnamál - fundargerðir

Málsnúmer 1310039Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð frá fundi forstöðumanns bóka- og hérðasskjalasafns Fjallabyggðar og skrifstofu- og fjármálastjóra 6. ágúst s.l.

10.Náttúrugripasafn Ólafsfjarðar - aðsókn

Málsnúmer 1309002Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit starfsmanns náttúrugripasafnsins um starfsemi sumarsins.

11.Málefni hagsmunaaðila tjaldsvæða á Íslandi

Málsnúmer 1310075Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð frá fundi hagsmunaaðila tjaldsvæða sem haldinn var 19. okt .s.l. í Skagafirði.

12.Rekstur tjaldsvæðanna á Siglufirði 2013

Málsnúmer 1309004Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar greinargerð rekstaraðila tjaldsvæðanna á Siglufirði.

13.Tjaldsvæði og upplýsingamiðstöð Fjallabyggðar í Ólafsfirði sumarið 2013

Málsnúmer 1310056Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar greinargerð rekstraraðila tjaldsvæðis og upplýsingarmiðstöðvar í Ólafsfirði.

14.Nýtt starf markaðs- og menningarfulltrúa

Málsnúmer 1306068Vakta málsnúmer

Á 310. fundi bæjarráðs 3. september. s.l. var samþykkt að ráða Kristin J. Reimarsson í starf markaðs- og menningarfulltrúa Fjallabyggðar.  Kristinn mun hefja störf í desemberbyrjun og býður markaðs- og menningarnefnd hann velkominn til starfa.


15.Stefnumótun í menningarmálum á starfsvæði Eyþings

Málsnúmer 1306017Vakta málsnúmer

Menningarráð Eyþings kynnti menningarstefnu á aðalfundi Eyþings í september s.l. þar sem framkominni stefnu var fagnað.
Menningarráð Eyþings leggur áherslu á að sveitarfélög horfi til hennar við vinnu í málaflokknum.

Fundi slitið - kl. 18:45.