Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar

61. fundur 05. febrúar 2020 kl. 17:00 - 18:15 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Ólafur Stefánsson formaður, D lista
  • Jón Kort Ólafsson aðalmaður, H lista
  • Sigríður Guðmundsdóttir aðalmaður, D lista
  • Ægir Bergsson varaformaður I lista
Starfsmenn
  • Linda Lea Bogadóttir markaðs- og menningarfulltrúi
  • Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála
Fundargerð ritaði: Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála.
Ida M. Semey boðaði forföll og ekki gafst tími til að boða varamann hennar.

1.Tjarnarborg - starfið 2019

Málsnúmer 2001094Vakta málsnúmer

Snjólaug Ásta Sigurfinnsdóttir umsjónarmaður Tjarnarborgar fór yfir starfið í menningarhúsinu árið 2019. Mjög mikið og fjölbreytt starf fór fram í menningarhúsinu og voru gestir og þátttakendur um 15.500 yfir árið. Notkun á Menningarhúsinu Tjarnarborg, viðburðir, æfingar og undirbúningur viðburða voru alls 235 skipti.

2.Merki heimasíðu Bóka- og Héraðsskjalasafns og Listaverkasafns Fjallabyggðar

Málsnúmer 2001018Vakta málsnúmer

Markaðs- og menningarfulltrúi kynnti hugmyndir að merkjum (logó) fyrir Bókasafn Fjallabyggðar, Héraðsskjalasafn Fjallabyggðar og Listasafn Fjallabyggðar. Gígja Ívarsdóttir hannaði merkin. Forstöðumaður Bóka-og Héraðsskjalasafns Fjallabyggðar hefur valið merki úr tillögum hönnuðar fyrir Bókasafn Fjallabyggðar og Héraðsskjalasafn Fjallabyggðar sem markaðs- og menningarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti. Markaðs- og menningarnefnd valdi merki úr tillögum hönnuðar fyrir Listasafn Fjallabyggðar og felur markaðs- og menningarfulltrúa að ganga frá útfærslu merkisins í samræmi við niðurstöðu fundar. Nefndin þakkar hönnuði fyrir góðar tillögur og fagnar því að nú munu þessar stofnanir eiga sín eigin merki. Merkin munu m.a. prýða nýjar heimasíður þessara stofnana.

3.Markaðsstefna Fjallabyggðar

Málsnúmer 1811009Vakta málsnúmer

Farið yfir lokadrög að tillögu vinnuhóps um markaðsherferð Fjallabyggðar. Markaðs- og menningarnefnd vísar tillögunni til umfjöllunar í bæjarráði. Markaðs- og menningarnefnd þakkar vinnuhópnum fyrir vel unnin störf.

4.Afhending menningarstyrkja og útnefning bæjarlistamanns 2020

Málsnúmer 2002001Vakta málsnúmer

Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2020, Elías Þorvaldsson, verður útnefndur við hátíðlega athöfn fimmtudaginn 6. febrúar nk. í Menningarhúsinu Tjarnarborg í Ólafsfirði og hefst athöfnin kl. 18:00. Við sama tilefni verða afhentir styrkir Fjallabyggðar til menningarmála, hátíðarhalda, reksturs safna og setra ásamt styrk til fræðslumála 2020.

Fundi slitið - kl. 18:15.