Afhending menningarstyrkja og útnefning bæjarlistamanns 2020

Málsnúmer 2002001

Vakta málsnúmer

Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar - 61. fundur - 05.02.2020

Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2020, Elías Þorvaldsson, verður útnefndur við hátíðlega athöfn fimmtudaginn 6. febrúar nk. í Menningarhúsinu Tjarnarborg í Ólafsfirði og hefst athöfnin kl. 18:00. Við sama tilefni verða afhentir styrkir Fjallabyggðar til menningarmála, hátíðarhalda, reksturs safna og setra ásamt styrk til fræðslumála 2020.