Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar

39. fundur 10. janúar 2018 kl. 17:00 - 18:30 Ólafsvegi 4, Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Ásgeir Logi Ásgeirsson formaður, D lista
  • Hanna Sigríður Ásgeirsdóttir aðalmaður, D lista
  • Ægir Bergsson varaformaður, S lista
  • Guðrún Linda Rafnsdóttir aðalmaður, S lista
  • Jakob Kárason aðalmaður, S lista
  • Helga Jónsdóttir áheyrnarfulltrúi, B lista
Starfsmenn
  • Linda Lea Bogadóttir markaðs- og menningarfulltrúi
  • Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála
Fundargerð ritaði: Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála.

1.Stefnumótun fyrir Héraðsskjalasafn Fjallabyggðar 2018-2021

Málsnúmer 1801008Vakta málsnúmer

Umfjöllun um stefnumótun fyrir Héraðsskjalasafn Fjallabyggðar er frestað til næsta fundar.

2.Tjarnarborg - einföldun gjaldskrár

Málsnúmer 1711069Vakta málsnúmer

Undir þessum lið sat umsjónarmaður Tjarnarborgar og fór yfir gjaldskrá menningarhússins 2018. Gjaldskráin hefur verið einfölduð frá því sem verið hefur. Markaðs- og menningarnefnd samþykkir gjaldskránna fyrir sitt leyti og vísar henni til bæjarstjórnar til endanlegrar samþykktar.

Einnig vill nefndin þakka Kvenfélaginu Æskunni fyrir gjöf til Tjarnarborgar. Gjöfin er tvöfalt vöfflujárn.

3.Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2018

Málsnúmer 1709033Vakta málsnúmer

Auglýst var eftir tilnefningu um bæjarlistamann í nóvember sl. Engin tilnefning barst á auglýstum tíma. Markaðs- og menningarnefnd samþykkir að tilnefna Sturlaug Kristjánsson sem Bæjarlistamann Fjallabyggðar 2018. Útnefning fer fram í Menningarhúsinu Tjarnarborg fimmtudaginn 25. janúar nk.

4.Hátíðir í Fjallabyggð 2018

Málsnúmer 1801022Vakta málsnúmer

Markaðs- og menningarfulltrúi kynnti fyrirhugaðar hátíðir og hversu miklu fjármagni er gert ráð fyrir á fjárhagsáætlun fyrir 2018.

Erindi hefur borist frá Markaðs- og fræðslunefnd Slökkviliðs Ólafsfjarðar (MOFSÓ) þar sem óskað er eftir að gerður verði samningur til þriggja ára um framkvæmd 17.júní hátíðarhalda. Nefndin vísar erindinu til bæjarráðs.

Fundi slitið - kl. 18:30.