Hafnarstjórn Fjallabyggðar

76. fundur 29. október 2015 kl. 17:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Ólafur Haukur Kárason formaður, S lista
  • Gunnlaugur Oddsson aðalmaður, F lista
  • Margrét Ósk Harðardóttir aðalmaður, D lista
  • Sverrir Sveinsson áheyrnarfulltrúi, B lista
  • Hilmar Þór Zophoníasson varamaður, F lista
  • Þorsteinn Þorvaldsson varamaður, D lista
  • Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri
  • Ármann Viðar Sigurðsson deildarstjóri tæknideildar
  • Þorbjörn Sigurðsson yfirhafnarvörður
Fundargerð ritaði: Ármann Viðar Sigurðsson deildarstjóri tæknideildar

1.Fjárhagsáætlun 2016 og 2017-2019

Málsnúmer 1505055Vakta málsnúmer

Hafnarstjóri lagði fram drög að fjárhagsáætlun hafnarsjóðs 2016.

Hafnarstjórn samþykkir að vísa drögum að fjárhagsáætlun 2016 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

2.Gjaldskrár 2016

Málsnúmer 1509094Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að gjaldskrá hafnarsjóðs 2016.

Hafnarstjórn samþykkir að vísa drögum að gjaldskrá hafnarsjóðs 2016 til staðfestingar í bæjarstjórn.

3.Landaður afli í Fjallabyggðarhöfnum 2015

Málsnúmer 1503085Vakta málsnúmer

Landaður afli í Fjallabyggðarhöfnum á tímabilinu 1. janúar 2015 til 29. október 2015.
Siglufjörður 19710 T í 2202 löndunum. Ólafsfjörður 496 T 547 í löndunum.

Samanburður við sama tímabil 2014.
Siglufjörður 16052 T í 2414 löndunum. Ólafsfjörður 780 T í 605 löndunum.

Lagt fram til kynningar.

4.Reglubundin skoðun - Vigtarskúr

Málsnúmer 1510110Vakta málsnúmer

Til umfjöllunar var skoðunarskýrsla Vinnueftirlits frá 20. október 2015 í kjölfar heimsóknar á hafnarvogina á Siglufirði og viðbrögð við skýrslunni.

Á 414. fundi bæjarráðs var óskað eftir formlegri umsögn yfirhafnarvarðar um skoðunarskýrsluna með úrbætur í huga.

Umsögn yfirhafnarvarðar við skoðunarskýrslu lögð fram.

5.Rekstrarúttekt á starfsemi hafnarsjóðs

Málsnúmer 1508023Vakta málsnúmer

Erindi frestað.

6.Þjónusta á hafnarsvæði Fjallabyggðahafna

Málsnúmer 1510111Vakta málsnúmer

Umræða var um hvernig verkaskipting og verkferlar eru á hafnarsvæðum Fjallabyggðarhafna.

Fundi slitið.