Hafnarstjórn Fjallabyggðar

69. fundur 27. apríl 2015 kl. 17:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Ólafur Haukur Kárason formaður, S lista
  • Ragnheiður H Ragnarsdóttir varaformaður, F lista
  • Gunnlaugur Oddsson aðalmaður, F lista
  • Margrét Ósk Harðardóttir aðalmaður, D lista
  • Sverrir Sveinsson áheyrnarfulltrúi, B lista
  • Þorsteinn Þorvaldsson varamaður, D lista
  • Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri
  • Ármann Viðar Sigurðsson deildarstjóri tæknideildar
  • Þorbjörn Sigurðsson yfirhafnarvörður
Fundargerð ritaði: Ármann Viðar Sigurðsson Deildarstjóri tæknideildar

1.Dýpkun - Siglufjarðarhöfn

Málsnúmer 1503011Vakta málsnúmer

Lagður fram verksamningur við Hagtak hf vegna dýpkunarverkefna við höfnina á Siglufirði. Heildarkostnaður er 6.944.444 án vsk. samkvæmt samningnum.
Hafnarstjórn samþykkir framlagðan samning samhljóða.

2.Flotbryggjur

Málsnúmer 1401114Vakta málsnúmer

Yfirhafnarvörður óskar eftir að fá heimild til þess að nýta þrjár einingar af fráfarandi flotbryggju í Ólafsfirði. Ætlunin er að staðsetja þær við bryggjukantinn sem liggur þvert á vesturkant í smábátahöfn. Áætlaður kostnaður er 600.000,-.
Hafnarstjórn frestar málinu og felur deildarstjóra tæknideildar að fá tilboð í uppsetningu og leggja fyrir næsta fund hafnarstjórnar.

3.Landaður afli í Fjallabyggðarhöfnum 2015

Málsnúmer 1503085Vakta málsnúmer

Landaður afli á tímabilinu 1. janúar 2015 til 27. apríl 2015.
Siglufjörður 5767 tonn í 470 löndunum.
Ólafsfjörður 317 tonn í 232 löndunum.
Samanburður við sama tíma fyrir árið 2014 er.
Siglufjörður 4548 tonn í 440 löndunum.
Ólafsfjörður 132 tonn í 201 löndunum.
Lagt fram til kynningar

4.Staðsetning olíutanka fyrir smærri báta

Málsnúmer 1504018Vakta málsnúmer

Bókun Skipulags- og umhverfisnefndar:
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir staðsetningu olíutanka á Óskarsbryggju en bendir á að uppdrættir af fyrirkomulagi mengunarvarna þurfa að berast byggingarfulltrúa áður en af framkvæmdinni verður, í samræmi við 7.gr reglugerðar um varnir gegn olíumengun frá starfsemi í landi, nr. 35/1994.

Hafnarstjórn felur hafnarstjóra og yfirhafnarverði að skrifa bréf til olíufélaganna þar sem þeim er gefinn frestur til 1. júlí til þess að færa olíutanka að tilgreindu svæði við Óskarsbryggju. Einnig er þeim falið að kynna notendum um breyttan afgreiðslustað.

5.Umgengni á hafnarsvæðum Fjallabyggðar

Málsnúmer 1504019Vakta málsnúmer

Á fundi hafnarstjórnar þann 13. apríl sl. var til umræðu umgengni á hafnarsvæðum í Fjallabyggð. Fól hafnarstjórn hafnarstjóra, deildarstjóra tæknideildar og yfirhafnarverði að koma með tillögu að umgengni og fyrirkomulagi gáma við hafnarsvæði Fjallabyggðar. Ljóst er að umgengi um hafnar- og atvinnusvæði í Fjallabyggð má vera betra og því eru eigendur veiðarfæra, járnadóts, vélarhluta og annarra lausamuna sem eru og hafa verið í hirðuleysi á þessum svæðum beðnir um að fjarlægja þetta dót fyrir 1. júní 2015. Eftir þann tíma verður því sem ekki hefur verið fjarlægt af eigendum eða umráðafólki fargað á kostnað eigenda.

6.Rekstraryfirlit febrúar 2015

Málsnúmer 1503088Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar

7.Fundargerðir Hafnasambands Íslands - 2015

Málsnúmer 1501068Vakta málsnúmer

Fundargerð 374. fundar lögð fram til kynningar.

Fundi slitið.