Innra eftirlit með öryggi í höfnum 2026

Málsnúmer 2607014

Vakta málsnúmer

Framkvæmda-, hafna og veitunefnd Fjallabyggðar - 12. fundur - 18.08.2026

Hafnarstjóri greindi frá innra eftirliti á öryggisbúnaði sem starfsmenn hafnarinnar hafa framkvæmt að undanförnu í samræmi við ákvæði reglugerðar um slysavarnir og öryggisbúnað nr 580/2017.
Samþykkt
Hafnarstjóri greindi frá athugasemdum er gerðar voru af Samgöngustofu varðandi öryggismál og framkvæmd siglingaverndar á Siglufirði. Búið er að bregðast við þeim athugasemdum sem gerðar voru.