Holræsahreinsun og götusópun verðkönnun og útboð 2026

Málsnúmer 2602057

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 910. fundur - 26.02.2026

Fyrir liggur vinnuskjal frá bæjarstjóra þar sem óskað er heimildar til þess að aðskilja holræsahreinsun og götusópun í verðkönnun og útboði en verksamningur um báða verkþætti er nú að renna út.
Samþykkt
Bæjarráð veitir bæjarstjóra heimild til þess að aðskilja götusópun frá holræsahreinsun við næsta útboð holræsahreinsunar á vegum sveitarfélagsins. Bæjarstjóra jafnframt veitt heimild til þess að framkvæma verðkönnun á götusópun.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 915. fundur - 09.04.2026

Fyrir liggja niðurstöður úr verðkönnun á gatna - og gangstéttasópun í Fjallabyggð næstu þrjú árin, þ.e. 2026, 2027 og 2028. Fjórir aðilar buðu í verkið, þ.e. Bás ehf, Hreinsitækni, Verkval og Smárinn. Verðtilboð voru eftirfarandi fyrir þriggja ára tímabil þar sem miðað er við eina allsherjar sópun í sveitarfélaginu:
Bás ehf kr. 3.694.320
Smárinn ehf kr. 4.032.000
Verkval ehf kr. 4.315.770
Hreinsitækni kr. 4.920.660


Samþykkt
Í ljósi fyrirliggjandi gagna um verð og tækjabúnað er bæjarstjóra og framkvæmdasviði falið að ganga til viðræðna við Smárann ehf um gatna- og gangstéttasópun í Fjallabyggð þar sem lægstbjóðandi uppfyllir ekki skilyrði verðkönnunar varðandi tækjabúnað að mati framkvæmdasviðs.