Ærslabelgur 2026

Málsnúmer 2604002

Vakta málsnúmer

Framkvæmda-, hafna og veitunefnd Fjallabyggðar - 9. fundur - 15.04.2026

Fyrir liggja tillögur að staðsetningu á ærslabelg á Siglufirði. Annars vegar er gert ráð fyrir ærslabelg á núverandi stað en þá þarf að girða við hann til þess að minnka slysahættu en gert er ráð fyrir um 70 metra girðingu auk þess sem settur yrði upp drykkjarbrunnur innan girðingar og stæði fyrir reiðhjól. Áætlaður kostnaður er um 1 milljón. Hins vegar er tillaga um að færa ærslabelginn á lóð við Vallarbraut þar sem gert er ráð fyrir leiksvæði og samhliða því sá í svæðið um kring eða þökuleggja og setja þar upp fótboltamörk. Svæðið gæti litið afar vel út með þessari útfærslu en kostnaður er umtalsverður eða um 4 milljónir er reiknað er með þökulagningu á svæðinu.
Samþykkt
Nefndin leggur til að ærslabelgur á Siglufirði verði færður á svæði við Vallarbraut í samræmi við fyrirliggjandi gögn þar sem gert er ráð fyrir leiksvæði og að samhliða því verði sáð í svæðið að hluta og að hluta þökulagt þannig að það nýtist sem almennt leik - og útivistarsvæði.