Framkvæmda-, hafna og veitunefnd Fjallabyggðar

7. fundur 11. febrúar 2026 kl. 16:00 - 17:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Tómas Atli Einarsson formaður
  • Guðmundur Gauti Sveinsson varam.
  • Ægir Bergsson aðalm.
  • Áslaug Inga Barðadóttir aðalm.
  • Andri Viðar Víglundsson varam.
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson bæjarstjóri
  • Gísli Davíð Sævarsson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson hafnarstjóri

1.Starfsmannahald og rekstur Fjallabyggðahafna

Málsnúmer 2501019Vakta málsnúmer

Hafnarstjóri fór yfir stöðu mála varðandi starfsmannahald og rekstur Fjallabyggðahafna.
Samþykkt
Nefndin samþykkir að fela hafnarstjóra að auglýsa starf hafnarvarðar til umsóknar og verði umsóknarfrestur til 27.febrúar n.k.

2.Aflatölur 2026

Málsnúmer 2602013Vakta málsnúmer

Í janúarmánuði var um 531 tonnum landað í Fjallabyggð í 32 löndunum en á sama tímabili árið 2025 var búið að landa um 90 tonnum. Nær öllum afla var landað á Siglufirði eða 527 tonnum.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

3.Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026.

Málsnúmer 2601042Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundargerð 479.fundar stjórnar Hafnasambands Íslands.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

4.Stöðufundir skipulags- og framkvæmdasviðs 2026

Málsnúmer 2601018Vakta málsnúmer

Fyrir liggja vinnuskjöl af fundum framkvæmdasviðs númer 51, 52 og 53
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

5.Malbikun 2026

Málsnúmer 2602009Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tilboð í malbik fyrir árið 2026 en umtalsverð hækkun er á malbiki frá árinu 2025. Framkvæmdasvið er að vinna í kortlagningu malbikunar fyrir árið.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

6.Endurbætur á sundlaug Siglufjarðar

Málsnúmer 2502037Vakta málsnúmer

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum þann 5.febrúar að taka tilboði í endurbætur á lagnarými í Sundlaug á Siglufirði frá Finni Inga Sölvasyni. Tilboðið var um 3% umfram kostnaðaráætlun.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

7.Gangstéttaframkvæmdir 2026 - útboð

Málsnúmer 2510078Vakta málsnúmer

Fyrir liggja niðurstöður úr verðtilboðum í gangstéttaframkvæmdir ársins 2026. Sölvi Sölvason átti lægsta tilboð og mun framkvæmdasvið ganga til samninga varðandi gangstéttarframkvæmdir.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 17:00.