Framkvæmda-, hafna og veitunefnd Fjallabyggðar

6. fundur 26. janúar 2026 kl. 16:00 - 17:00 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Tómas Atli Einarsson formaður
  • Guðmundur Gauti Sveinsson varam.
  • Ægir Bergsson aðalm.
  • Sæbjörg Ágústsdóttir varam.
  • Jón Kort Ólafsson aðalm.
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson bæjarstjóri
  • Gísli Davíð Sævarsson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson hafnarstjóri

1.Innviðir vatnsveitu í Ólafsfirði

Málsnúmer 2401022Vakta málsnúmer

Fyrir liggur samantekt á innviðum vatnsveitu í Ólafsfirði og ábendingar um ráðlagðar endurbætur.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Nefndin telur mikilvægt að fyrir liggi frekari gögn um hugsanlega möguleika á lausn mála varðandi vatnsveitu í Ólafsfirði og felur framkvæmdasviði að afla frekari upplýsinga og leggja fram mögulega kosti um hagkvæmar lausnir á næsta fund. Framkvæmda-, hafna- og veitunefnd leggur áherslu á að málið verði unnið hratt þannig að mögulegt sé að taka afstöðu til hugsanlegra lausna eins fljótt og auðið er.

2.Vatnstjón í Ráðhúsi í janúar 2026

Málsnúmer 2601011Vakta málsnúmer

Fyrir liggja upplýsingar vegna vatnstjóns sem varð á miðhæð og neðstu hæð ráðhússins föstudaginn 2.janúar s.l. Vatnslögn fór í sundur og vatn flæddi yfir gólfflöt og niður á neðstu hæð, þ.e. á bókasafnið. Tjónið er minniháttar og hefur verið tilkynnt til tryggingafélags.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Nefndin þakkar fyrir upplýsingarnar og leggur áherslu á að tjónið verði bætt í samræmi við tryggingar sveitarfélagsins.

3.Eftirlitskerfi vatns- og fráveitu.

Málsnúmer 2601060Vakta málsnúmer

Fyrir liggur samantekt framkvæmdasviðs á stöðu eftirlitskerfa vatns - og fráveitu í Fjallabyggð sem unnið hefur verið að undanfarin misseri. Fram kemur í samantektinni að búið er að setja upp eftirlitskerfi á fráveitubrunna í Ólafsfirði en uppsetning stendur yfir á Siglufirði.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

4.Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026.

Málsnúmer 2601042Vakta málsnúmer

Fyrir liggja fundargerðir stjórnar Hafnasambands Íslands.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

5.Komur skemmtiferðaskipa og áætlun 2026

Málsnúmer 2601046Vakta málsnúmer

Fyrir liggja upplýsingar um komur skemmtiferðaskipa og farþegafjölda á árinu 2025 sem og upplýsingar um bókunarstöðu á árinu 2026.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

6.Framtíðin og íslenskar hafnir

Málsnúmer 2601044Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar skýrsla um framtíðarstefnu hafna sem byggir á niðurstöðum vinnustofu Hafnasambands Íslands sem haldin var í Ólafsvík í október 2025.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

7.Stöðufundir skipulags- og framkvæmdasviðs 2026

Málsnúmer 2601018Vakta málsnúmer

Fyrir liggja vinnuskjöl af stöðufundum framkvæmdasviðs af fundum 48-50.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

8.Framkvæmdir og viðhald 2026

Málsnúmer 2601055Vakta málsnúmer

Fyrir liggja upplýsingar um kynningarfund sem haldinn var fimmtudaginn 22.janúar þar sem farið var yfir fyrirhugaðar framkvæmdir og viðhaldsverkefni á árinu 2026.
Lagt fram til kynningar
Fundurinn var vel sóttur af verktökum og fleiri aðilum og tókst hann vel.

9.Hafnasambandsþing 2026

Málsnúmer 2601048Vakta málsnúmer

Hafnasambandsþing 2026 verður haldið í Stapa í Reykjanesbæ 22.-23.október n.k. Gert er ráð fyrir því að 2 fulltrúar mæti á þingið f.h. Fjallabyggðarhafna.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

10.Aflatölur 2025

Málsnúmer 2503012Vakta málsnúmer

Aflatölur fyrir árið 2025 liggja nú fyrir og jókst heildarafli sem landað var í Fjallabyggð lítillega frá árinu 2024 en aflaverðmæti hefur hins vegar aukist umtalsvert á milli ára.
Landaður heildarafli á Siglufirði var 15.103 tonn árið 2025 í 1.240 löndunum á móti 14.926 tonnum árið 2024 í 1.266 löndunum og landaður heildarafli á Ólafsfirði var 64 tonn í 114 löndunum árið 2025 á móti 135 tonnum árið 2024 í 120 löndunum. Samanlagt var því landaður afli á árinu 2025 í Fjallabyggð 15.167 tonn á móti 15.061 tonnum árið 2024.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 17:00.