Vatnstjón í Ráðhúsi í janúar 2026

Málsnúmer 2601011

Vakta málsnúmer

Framkvæmda-, hafna og veitunefnd Fjallabyggðar - 6. fundur - 26.01.2026

Fyrir liggja upplýsingar vegna vatnstjóns sem varð á miðhæð og neðstu hæð ráðhússins föstudaginn 2.janúar s.l. Vatnslögn fór í sundur og vatn flæddi yfir gólfflöt og niður á neðstu hæð, þ.e. á bókasafnið. Tjónið er minniháttar og hefur verið tilkynnt til tryggingafélags.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Nefndin þakkar fyrir upplýsingarnar og leggur áherslu á að tjónið verði bætt í samræmi við tryggingar sveitarfélagsins.