Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar

75. fundur 07. október 2019 kl. 16:30 - 18:30 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • S. Guðrún Hauksdóttir formaður, D lista
  • Hólmar Hákon Óðinsson varaformaður I lista
  • Guðrún Linda Rafnsdóttir aðalmaður, I lista
  • Tómas Atli Einarsson varamaður, D lista
  • Þorgeir Bjarnason varamaður, H lista
Starfsmenn
  • Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála
Fundargerð ritaði: Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda og menningarmála
Gauti Már Rúnarsson boðaði forföll og Tómas Atli Einarsson sat fundinn í hans stað.
Diljá Helgadóttir boðaði forföll og Þorgeir Bjarnason sat fundinn í hennar stað.

1.Trúnaðarmál

Málsnúmer 1910008Vakta málsnúmer

Niðurstaða færð í trúnaðarbók.

2.Fyrirspurn varðandi flot í sundlaugum Fjallabyggðar

Málsnúmer 1910001Vakta málsnúmer

Haukur Sigurðsson forstöðumaður íþróttamannvirkja sat undir þessum lið. Erindi barst frá Önnu Huldu Júlíusdóttur þar sem hún óskar eftir afnotum af sundlaugum Fjallabyggðar fyrir samflot. Fræðslu- og frístundanefnd óskar eftir umsögn forstöðumanns íþróttamiðstöðvar og deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála um málið sem lögð yrði fram á næsta fundi nefndarinnar.

3.Umsókn um æfingatíma í líkamsrækt

Málsnúmer 1910010Vakta málsnúmer

Haukur Sigurðsson forstöðumaður íþróttamannvirkja sat undir þessum lið. Umsókn barst frá Skíðafélagi Ólafsfjarðar um æfingartíma í líkamsrækt fyrir eldri iðkendur félagsins. Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir umsókn um æfingatíma í líkamsrækt með því skilyrði að iðkendur uppfylli reglur um aldurstakmark í líkamsræktarstöð íþróttamiðstöðvar.

4.Vinnuskóli 2019

Málsnúmer 1905017Vakta málsnúmer

Haukur Sigurðsson forstöðumaður íþróttamiðstöðva og vinnuskóla sat undir þessum lið. Forstöðumaður fór yfir starf Vinnuskólans síðastliðið sumar. Starfið gekk vel og var innan fjárheimilda.

5.Vetraropnun íþróttamiðstöðva 2019-2020

Málsnúmer 1908058Vakta málsnúmer

Haukur Sigurðsson forstöðumaður íþróttamannvirkja sat undir þessum lið. Forstöðumaður leggur til að opnunartími sundlauga verði lengdur til 20:30 á þriðjudögum og fimmtudögum á Siglufirði og til kl. 20:00 á Ólafsfirði. Kostnaður rúmast innan fjárhagsáætlunar. Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir tillögu forstöðumanns.

6.Samstarf íþróttamiðstöðva í Fjallabyggð og á Dalvík

Málsnúmer 1910009Vakta málsnúmer

Haukur Sigurðsson forstöðumaður íþróttamiðstöðva Fjallabyggðar sat undir þessum lið. Forstöðumaður íþróttamiðstöðva og íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Dalvíkurbyggðar óska eftir að komið verði á formlegu samstarfi milli sveitarfélaganna með þeim hætti að þeir sem eiga gild tímabilskort hjá annarri íþróttamiðstöðinni, geti fengið aðgang að rækt og/eða sundi í allt að tvö skipti á viku á hvorum stað.

Að auki verði tímabundinn aðgangur fyrir korthafa þegar annar aðilinn er með lokað vegna viðhalds eða þrifa.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir tillögu um samstarf fyrir sitt leyti.

7.Samningur um sveigjanleg skólaskil

Málsnúmer 1910005Vakta málsnúmer

Samningur Grunnskóla Fjallabyggðar, Menntaskólans á Tröllaskaga og Fjallabyggðar um sveigjanleg skólaskil grunnskólanemenda lagður fram. Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir samninginn fyrir sitt leyti.

8.Leiðbeinandi álit um tvöfalda skólavist barna

Málsnúmer 1910003Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

9.Reglur Fjallabyggðar um úthlutun styrkja til fræðslurmála

Málsnúmer 1910006Vakta málsnúmer

Drög að nýjum reglum um úthlutun fræðslustyrkja Fjallabyggðar lagðar fram. Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti.

Fræðslu- og frístundanefnd leggur til að afnema einstaka frístundastyrki og framlag til ÚÍF verði hækkað sem því nemur. Formanni fræðslu- og frístundanefndar og deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningardeildar er falið að fylgja málinu eftir í samræmi við niðurstöðu fundarins.

Fundi slitið - kl. 18:30.