Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar

51. fundur 21. febrúar 2018 kl. 16:30 - 18:00 Ólafsvegi 4, Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • S. Guðrún Hauksdóttir formaður, D lista
  • Hjördís Hanna Hjörleifsdóttir aðalmaður, D lista
  • Nanna Árnadóttir aðalmaður, S lista
  • Steinunn María Sveinsdóttir varamaður, S lista
  • Hrafnhildur Ýr Denke Vilbertsdóttir varamaður, S lista
Starfsmenn
  • Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála
Fundargerð ritaði: Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda og menningarmála
Rósa Jónsdóttir áheyrnarfulltrúi boðaði forföll og varamaður hennar líka.

1.Frítími aðildafélaga um helgar

Málsnúmer 1801024Vakta málsnúmer

Haukur Sigurðsson forstöðumaður íþróttamiðstöðva sat undir þessum lið. Erindi frá stjórn UÍF tekið fyrir. Stjórn UÍF óskar eftir nánari leiðbeiningum um hvert aðildarfélög UÍF beini tilfallandi óskum um frítíma um helgar og í hvaða formi. Lögð fram drög að verkreglum þar um. Deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála falið að ljúka við verkreglur til birtingar á heimasíðu Fjallabyggðar og svara erindi stjórnar UÍF.

2.Heilsueflandi samfélag

Málsnúmer 1609008Vakta málsnúmer

Haukur Sigurðsson forstöðumaður íþróttamiðstöðva sat undir þessum lið.

Fundargerð fyrsta fundar stýrihóps um Heilsueflandi samfélag lögð fram til kynningar.

Formleg umsókn til Landlæknisembættisins um aðild Fjallabyggðar að verkefninu Heilsueflandi samfélag hefur verið send. Tengiliður sveitarfélagsins við Embætti landlæknis er deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála.

Í tilefni af umsókn sveitarfélagsins eru nú auglýstir fríir dagar í líkamsræktum sveitarfélagsins og sérstakir kynningartímar í spinning og líkamsrækt. Boðið er upp á kennslu á líkamsræktartækin á ákveðnum tímum þessa daga. Leiðbeinendum eru færðar sérstakar þakkir fyrir.

3.Ungt fólk og lýðræði 2018

Málsnúmer 1802026Vakta málsnúmer

Haukur Sigurðsson forstöðumaður íþróttamiðstöðva sat undir þessum lið.

Hin árlega ráðstefna Ungt fólk og lýðræði verður haldin 21.-23. mars nk. á hótel Borealis Efri-Brú í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Yfirskrift ráðstefnunnar er Okkar skoðun skiptir máli. Ráðstefnan er ætluð ungu fólki á aldrinum 16-25 ára. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður við 2 frá hverju Ungmennaráði.
Fræðslu- og frístundanefnd hvetur Ungmennaráð til að senda fulltrúa á ráðstefnuna.

4.Míó, skimunartæki í stærðfræði f. leikskóla

Málsnúmer 1801064Vakta málsnúmer

Olga Gísladóttir leikskólastjóri og Hulda Teitsdóttir fulltrúi foreldra sátu undir þessum lið. Kynningarbréf um skimunarefnið MIO, Stærðfræðin, einstaklingurinn, aðstæðurnar, lagt fram til kynningar. Um er að ræða skimunartæki í stærðfræði fyrir leikskóla sem gefið hefur verið út, þýtt og staðfært af Dóróþeu Reimarsdóttur, Jóhönnu Skaftadóttur og Þóru Rósu Geirsdóttur.

Leikskólastjóra og deildarstjóra er falið að skoða efnið og með hvaða hætti skimunartækið nýtist leikskólanum. Ekki er tímabært að innleiða tækið að svo stöddu.

5.Frístundastefna Fjallabyggðar

Málsnúmer 1407058Vakta málsnúmer

Endurskoðun frístundastefnu er ekki lokið.
Fræðslu- og frístundanefnd felur deildarstjóra og formanni fræðslu- og frístundanefndar að endurskoða og uppfæra núgildandi frístundastefnu og leggja drög fyrir nefndina í byrjun apríl. Drögin verða send hagsmunahópum til umsagnar.

6.Opnun íþróttamiðstöðva um páska 2018

Málsnúmer 1802073Vakta málsnúmer

Haukur Sigurðsson forstöðumaður íþróttamiðstöðva sat undir þessum lið.

Lögð fram áætlun um opnun sundlauga og íþróttamiðstöðva um páska 2018. Dagana 29. mars - 2. apríl 2018 verður opið kl. 10 - 18 í báðum byggðarkjörnum.

Fundi slitið - kl. 18:00.