Félagsmálanefnd Fjallabyggðar

128. fundur 15. janúar 2021 kl. 12:00 - 13:00 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Díana Lind Arnarsdóttir aðalmaður, D lista
  • Hólmar Hákon Óðinsson aðalmaður, I lista
  • Jón Kort Ólafsson aðalmaður, H lista
  • Sæbjörg Ágústsdóttir formaður I lista
Starfsmenn
  • Hjörtur Hjartarson deildarstjóri félagsmáladeildar
Fundargerð ritaði: Hjörtur Hjartarson deildarstjóri félagsmáladeildar

1.Dagdvöl aldraðra, vetrardagskrá 2020-2021

Málsnúmer 2009056Vakta málsnúmer

Með nýrri reglugerð heilbrigðisráðherra um fjöldatakmarkanir sem tók gildi 13. janúar sl. er unnt að taka upp þráðinn með dagskrá félagsstarfs aldraðra og starfsemi dagdvalar eldri borgara. Starfsemin verður að sjálfsögðu innan þeirra takmarkana sem reglugerðin segir til um.
Þeir sem hyggjast taka þátt í vatnsleikfiminni eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig í síma 464-9250 (Ólafsfjörður) eða 464-9170 (Siglufjörður).

2.Trúnaðarmál, félagsleg þjónusta

Málsnúmer 1802077Vakta málsnúmer

Erindi samþykkt.

3.Stytting vinnuvikunnar

Málsnúmer 2101016Vakta málsnúmer

Stytting vinnuvikunnar tók gildi 1. janúar sl.. Hjá vaktavinnufólki tekur styttingin gildi 1. maí næstkomandi. Innleiðingarferlið hjá starfsmönnum félagsþjónustunnar hefur gengið að óskum.

4.Húsnæðisáætlun Fjallabyggðar 2021

Málsnúmer 2101035Vakta málsnúmer

Hafin er vinna við uppfærslu húnsæðisáætlunar Fjallabyggðar 2020-2027, sem samþykkt var af bæjarstjórn þann 12. mars 2020. Húsnæðisáætlunin er endurskoðuð árlega með tilliti til breytinga og þróunar sem verði á forsendum á milli ára. Leitað hefur verið til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um uppfærslu á viðeigandi stuðningsgöngum.

5.Tilraunaverkefni um sérstakan húsnæðisstuðning

Málsnúmer 2012040Vakta málsnúmer

Lokaskýrsla um tilraunaverkefni um sérstakan húsnæðisstuðning
Lögð fram til kynningar lokaskýrsla Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) um tilraunaverkefni um sérstakan húsnæðisstuðning, dags. í nóvember 2020. Í skýrslunni leggur HMS til að almennar húsnæðisbætur ríkisins og sérstakur húsnæðisstuðningur sveitarfélaga verði sameinaðar í eitt opinbert stuðningskerfi við leigjendur.

6.Samþætting þjónustu í þágu farsældar barna

Málsnúmer 2101038Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar drög að frumvarpi til laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna er ætlað að stuðla að samvinnu aðila. Þar er fjallað um samþættingu þjónustu margra þjónustukerfa sem starfa með stoð í lögum og veita þjónustu sem skiptir máli fyrir farsæld barns, þ.m.t. menntun, heilbrigðisþjónusta, félagsþjónusta og löggæsla.

Fundi slitið - kl. 13:00.