Dagdvöl aldraðra, vetrardagskrá 2020-2021

Málsnúmer 2009056

Vakta málsnúmer

Félagsmálanefnd Fjallabyggðar - 128. fundur - 15.01.2021

Með nýrri reglugerð heilbrigðisráðherra um fjöldatakmarkanir sem tók gildi 13. janúar sl. er unnt að taka upp þráðinn með dagskrá félagsstarfs aldraðra og starfsemi dagdvalar eldri borgara. Starfsemin verður að sjálfsögðu innan þeirra takmarkana sem reglugerðin segir til um.
Þeir sem hyggjast taka þátt í vatnsleikfiminni eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig í síma 464-9250 (Ólafsfjörður) eða 464-9170 (Siglufjörður).