Félagsmálanefnd Fjallabyggðar

129. fundur 12. febrúar 2021 kl. 12:00 - 13:00 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Ingvar Ágúst Guðmundsson varaformaður, D lista
  • Díana Lind Arnarsdóttir aðalmaður, D lista
  • Hólmar Hákon Óðinsson aðalmaður, I lista
  • Jón Kort Ólafsson aðalmaður, H lista
  • Sæbjörg Ágústsdóttir formaður I lista
Starfsmenn
  • Hjörtur Hjartarson deildarstjóri félagsmáladeildar
Fundargerð ritaði: Hjörtur Hjartarson deildarstjóri félagsmáladeildar

1.Íþrótta- og tómstundastyrkir til lágtekjuheimila vegna Covid-19

Málsnúmer 2009052Vakta málsnúmer

Félagsmálanefnd vekur athygli á íþrótta- og tómstundastyrkjum fyrir grunnskólabörn sem búa á heimilum þar sem heildartekjur framfærenda, einstaklings, hjóna eða sambúðarfólks, voru lægri en 740.000 kr. að meðaltali á mánuði á tímabilinu mars - júlí árið 2020. Um er að ræða sérstakt verkefni félags- og barnamálaráðherra í kjölfar Covid-19 faraldursins.
Styrkurinn er veittur vegna barna sem fædd eru á árunum 2005-2014 og er að hámarki 45.000 krónur fyrir hvert barn sem stundar skipulagt íþróttastarf, tómstundastarf og einnig tónlistarskólanám á haustönn 2020 og/eða vorönn 2021. Íþróttafélögin gefa út greiðslukvittanir.
Athugið að hægt er að koma með kvittanir sem greitt var fyrir í upphafi árs, eða frá hausti 2020.
Sótt er um styrkinn á island.is (styrkur til íþrótta- og tómstundastarfs). Hafi umsækjendur ekki greiðslukvittanir eða rafræn skilríki má skila greiðslukvittunum íþróttafélaga og tónlistarskóla og tekjuupplýsingum á skrifstofu Fjallabyggðar fyrir 1. mars nk.
Nánari upplýsingar gefur Helga Helgadóttir, ráðgjafi félagsþjónustu í síma 464-9100.

2.Manntals og húsnæðistal 1. janúar 2021

Málsnúmer 2012021Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar

3.Stytting vinnuvikunnar

Málsnúmer 2101016Vakta málsnúmer

Deildarstjóri gerði grein fyrir innleiðingarferli styttingu vinnuvikunnar hjá starfstöðvum félagsþjónustunnar.

4.Trúnaðarmál-félagsleg þjónusta

Málsnúmer 2102043Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

5.Teymi um uppbyggingu félags- og atvinnumála í kjölfar COVID-19

Málsnúmer 2012028Vakta málsnúmer

Stöðuskýrsla teymis um uppbyggingu félags- og atvinnumála í kjölfar COVID-19, lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 13:00.