Manntals og húsnæðistal 1. janúar 2021

Málsnúmer 2012021

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 678. fundur - 22.12.2020

Lagt fram til kynningar erindi Hagstofu Íslands, dags. 27.11.2020 þar sem fram kemur að Hagstofan undirbýr nú töku manntals og húsnæðistals 1. janúar 2021 og að ráðgert sé að manntal verði framvegis tekið á hverju ári. Þá mun Hagstofan óska eftir viðbótarupplýsingum frá sveitarfélögum til þess að hægt sé að ákvarða búsetu allra einstaklinga með hjálp íbúaskrár Þjóðskrár Íslands.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 683. fundur - 09.02.2021

Lagt fram erindi Þjóðskrár Íslands og Hagstofu Íslands, dags. 27.01.2021 þar sem óskað er eftir upplýsingum um athugun á búsetu í Fjallabyggð ef heimilisfang er ótilgreint.

Bæjarráð samþykkir að fela deildarstjóra félagsmáladeildar að svara erindinu.