Bæjarráð Fjallabyggðar - 935. fundur - 2. október 2026

Málsnúmer 2609015F

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn Fjallabyggðar - 277. fundur - 22.10.2026

Fundargerðin er í 14 liðum og er borin upp í heild sinni að undanskildum lið 4 (Trúnaðarstöður samkvæmt samþykktum Fjallabyggðar 2026-2030) sem er sér dagskrárliður á fundinum og liðum 2 (Rekstur skíðasvæðis í Skarðsdal) og 5 (Útboð á snjómokstri og hálkuvörnum í Fjallabyggð 2026-2029) sem bornir eru upp sérstaklega.
Samþykkt
Til máls tók Tómas Atli Einarsson.

Pálmi Blængsson vék af fundi við afgreiðslu á lið 2 í fundargerðinni. Liður 2 í fundargerðinni samþykktur með 5 atkvæðum, Tómas Atli Einarsson sat hjá við afgreiðslu.

Liður 5 samþykktur með 7 atkvæðum.

Fundargerðin í heild sinni að undanskildum liðum 2, 4 og 5 samþykkt með 7 atkvæðum.
  • .2 2510036 Rekstur skíðasvæðis í Skarðsdal
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 935. fundur - 2. október 2026 Fyrir liggja svör frá meirihluta bæjarráðs vegna spurninga frá fulltrúa D- listans á bæjarstjórnarfundi 17. september s.l. og eru þau birt með fundargerðinni.

    Tómas Atli Einarsson fulltrúi D-lista bókaði eftirfarandi:

    "Fulltrúi D-lista telur svör meirihlutans ekki skýra hvaða gögn og samanburður studdu tillöguna um eigin rekstur skíðasvæðisins 3. september.

    Tilvísun til ástands svæðisins sýnir ekki ein og sér hvers vegna sú leið hafi verið óumflýjanleg, enda kemur fram að rekstraráætlun og mat á fjárþörf hafi verið enn í vinnslu þegar svörin voru samin.

    Jafnframt er staðfest að ákveðið var að leggja lögfræðiráðgjöfina hvað varðar jafnræði bjóðenda ekki fram á fundinum og að formaður synjaði frekari bókun, án þess að tiltekin regla sé nefnd til stuðnings. Samþykki mitt á frágangi fundargerðar fól ekki í sér samþykki á efni bókunar meirihlutans eða afturköllun athugasemda við málsmeðferðina. Óskað er eftir að gögn um forsendur tillögunnar verði lögð fram og leiðréttingarkrafan fái efnislega, rökstudda afgreiðslu."



    Bókun fundar Samþykkt með 5 atkvæðum. Pálmi Blængsson vék af fundi og Tómas Atli Einarsson sat hjá við afgreiðslu málsins.
  • .5 2605038 Útboð á snjómokstri og hálkuvörnum í Fjallabyggð 2026-2029
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 935. fundur - 2. október 2026 Bæjarráð þakkar fyrir framlögð gögn og heimilar sviðsstjóra að auglýsa opið útboð í samræmi við fyrirliggjandi gögn. Bókun fundar Samþykkt með 7 atkvæðum.