Bæjarráð Fjallabyggðar

493. fundur 21. mars 2017 kl. 08:00 - 10:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Steinunn María Sveinsdóttir formaður, S lista
  • S. Guðrún Hauksdóttir varaformaður, D lista
  • Sólrún Júlíusdóttir aðalmaður, B lista
  • Hilmar Þór Elefsen varamaður, S lista
Starfsmenn
  • Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri
  • Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu- og fjármála
Fundargerð ritaði: Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu- og fjármála

1.Rekstrarsamningur Síldarminjasafn 2017-2018

Málsnúmer 1611078Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að rekstrarsamningi við Síldarminjasafnið fyrir árið 2017-2018.
Undir þessum dagskrárlið vék Steinunn M. Sveinsdóttir af fundi og í stað hennar kom Hilmar Þór Elefsen.
Bæjarráð samþykkir samninginn samhljóða og felur bæjarstjóra og deildarstjóra stjórnsýslu- og fjármála að ganga frá samningnum.

2.Málefni Heilbrigðisstofnunar Norðurlands

Málsnúmer 1504010Vakta málsnúmer

Á fundinn mæta forstjóri og framkvæmdastjóri lækninga Heilbrigðisstofnunar Norðurlands.
Framkvæmdastjórn HSN hefur komist að þeirri niðurstöðu að leggja af sjúkrabílavakt á Ólafsfirði en að sjúkrabíllinn verði áfram staðsettur þar og verði tiltækur ef aðstæður krefjast. Tryggja þarf viðbragð þar við bráðum uppákomum og er stefnt að því að mynda hóp vettvangsliða í samstarfi við slökkvilið og/eða björgunarsveit til að sinna fyrsta viðbragði áður en sjúkrabíll kæmi frá Siglufirði eða í undantekningartilfellum frá Dalvík.

Bæjarráð mótmælir harðlega ákvörðun Framkvæmdarstjórnar HSN og hvetur þá til að endurskoða ákvörðun sína. Jafnframt mun bæjarráð óska eftir fundi með fulltrúum Heilbrigðisráðuneytisins.

3.Opnunartími sundlauga yfir páska 2017

Málsnúmer 1703039Vakta málsnúmer

Lagður fram útreikningur deildarstjóra fræðslu- frístunda og menningamála varðandi opnunartíma íþróttamiðstöðva í Fjallabyggð um páskana.
Opnunartími 2016 var frá klukkan 14.00 - 18.00 yfir páskana.
Bæjarráð samþykkir að opnunartími páskana 2017 verði frá klukkan 12.00 til 18.00. Áætlaður kostnaður bæjarsjóðs vegna þess er kr. 250.000 og er vísað til viðauka.

4.Málefni Hóls

Málsnúmer 1703048Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá ÚÍF varðandi greiðslur Fjallabyggðar fyrir afnot af Hóli.
Bæjarráð ítrekar að greiðslur til ÚÍF vegna Hóls séu samkvæmt samþykktri fjárhagsáætlun fyrir árið 2017. Bæjarráð samþykkir að boða fulltrúa ÚÍF á fund bæjarráðs til að ræða málefni Hóls.

5.Gjafaafsal Hóls

Málsnúmer 1703049Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá ÚÍF varðandi gjafaafsal Hóls þar sem óskað er eftir að Fjallabyggð falli frá kvöð í gjafaafsali varðandi Hól.
Bréf frá ÚÍF vegna gjafaafsals verður tekið fyrir þegar fulltrúar ÚÍF mæta á fund bæjarráðs.

6.Sjókvíaeldi Arnarlax í Eyjafirði

Málsnúmer 1703040Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að tillögu að matsáætlun vegna sjókvíaeldis Arnarlax í Eyjafirði.
Bæjarráð lítur málið jákvæðum augum og vísar því til afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.

7.Til umsagnar 234. mál frá nefndasviði Alþingis, frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum á sviði samgangna

Málsnúmer 1703041Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar

8.Til umsagnar 120. mál frá nefndasviði Alþingis, frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (afnám lágmarksútsvars)

Málsnúmer 1703042Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

9.Til umsagnar 236. mál frá nefndasviði Alþingis, frumvarp til laga um útlendinga (frestun réttaráhrifa o.fl.)

Málsnúmer 1703043Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar

10.Til umsagnar, 119. mál, frumvarp til laga um orlof húsmæðra (afnám laganna)

Málsnúmer 1703044Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

11.Fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar - 2017

Málsnúmer 1701004Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar eftirtaldar fundargerðir:
Fundargerð hafnarstjórnar frá 9. mars 2017
Fundargerð ungmennaráðs frá 16. mars 2017
Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar frá 15. mars 2017

12.Fundargerðir stjórnar Eyþings 2017

Málsnúmer 1701008Vakta málsnúmer

Bæjarráð tekur undir ályktun stjórnar Eyþings varðandi samgönguáætlun 2015 til 2018.

"Stjórn Eyþings gagnrýnir Alþingi fyrir að nýsamþykkt samgönguáætlun hafi ekki verið fjármögnuð að fullu við gerð fjárlaga 2017. Áætlunin er vanfjármögnuð um 10 milljarða króna á árinu 2017 og því hefur samgönguráðherra lagt til mikinn niðurskurð á þeim verkefnum sem til stóð að framkvæma á árinu. Eyþing hefur í takt við sóknaráætlun landshlutans lagt ríka áherslu á að uppbygging Dettifossvegar verði kláruð auk þess sem tryggt verði fjármagn í flughlað á Akureyrarflugvelli. Nú hefur fjármagn til Dettifossvegar verið skorið niður og er hluti af fjármögnun framkvæmdanna byggður á niðurskurði á öðrum brýnum samgönguverkefnum í landshlutanum. Ekkert fjármagn er ætlað í flughlað. Þessar framkvæmdir eru lykilatriði í því að ferðamenn dreifist sem víðast um landið. Af sömu ástæðu er aðkallandi að vegi um Brekknaheiði og Langanesströnd verði komið á framkvæmdaáætlun.
Stjórn Eyþings fagnar áformum ríkisstjórnarinnar um að setja nú aukið fjármagn til samgöngumála og skorar á Alþingi að tryggja fjármögnun þessara framkvæmda."
Fylgiskjöl:

Fundi slitið - kl. 10:00.