Bæjarráð Fjallabyggðar

427. fundur 12. janúar 2016 kl. 16:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Steinunn María Sveinsdóttir formaður, S lista
  • Kristinn Kristjánsson varaformaður, F lista
  • Helga Helgadóttir aðalmaður, D lista
  • Jón Valgeir Baldursson varaáheyrnarfulltrúi, B lista
  • Ólafur Þór Ólafsson deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála

1.Málefni fræðslu- frístunda- og menningarmáladeildar

Málsnúmer 1601027Vakta málsnúmer

Á fund bæjarráðs mætti deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála, Kristinn J. Reimarsson.

Almennar umræður voru um verkefni deildarinnar.
Bæjarráð óskaði nýráðnum deildarstjóra velfarnaðar í starfi sínu.

2.Samstarf Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar um þjónustusvæði í málaflokki fatlaðs fólks

Málsnúmer 1601026Vakta málsnúmer

Á fund bæjarráðs mætti deildarstjóri félagsmála, Hjörtur Hjartarson.

Farið var yfir stöðu samstarfs við Dalvíkurbyggð í málefnum fatlaðra.

3.Erindisbréf nefnda

Málsnúmer 1601028Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar drög að breyttum erindisbréfum, í tengslum við breytingu á skipuriti Fjallabyggðar.

Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

4.Rekstraryfirlit nóvember 2015

Málsnúmer 1601001Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar rekstraryfirlit nóvember 2015.
Rekstrarniðurstaða Fjallabyggðar fyrir fyrstu ellefu mánuði ársins 2015, er 45,9 milljónum betri en tímabilsáætlun gerir ráð fyrir, 196,7 millj. í tekjur umfram gjöld í stað 150,8 millj.
Tekjur eru 61,5 millj. hærri en áætlun, gjöld 3,8 millj. hærri og fjármagnsliðir 11,8 millj. hærri.

5.Framlenging ákvæðis um B-gatnagerðargjald

Málsnúmer 1601014Vakta málsnúmer

Í pósti frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga 23. desember s.l. er vakin athygli sveitarfélaga á því að Alþingi hefur samþykkt frumvarp innanríkisráðherra um framlengingu B-gatnagerðargjalds. Bráðabirgðaákvæði við lög um gatnagerðargjald hefði að óbreyttu runnið út um áramót en það hefur nú verið framlengt til ársloka 2017.

Þessi lagabreyting skiptir eingöngu máli fyrir þau sveitarfélög sem ekki hafa enn lokið framkvæmdum við lagningu bundins slitlags á eldri götur.

Bæjarráð óskar eftir umsögn bæjarstjóra.

6.Samræming reglna, verklags og ferla um afmörkun lóða innan sveitarfélaga þar sem er að finna mannvirki á vegum orkufyrirtækja

Málsnúmer 1601030Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett 8. janúar 2016, er varðar að hefja vinnu við að samræma reglur, verklag og ferla um afmörkun lóða innan sveitarfélaganna þar sem væru að finna mannvirki á vegum orkufyrirtækja. Fram kemur að það er samdóma álit forsætisráðuneytisins, Þjóðskrár Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga, sem koma munu að þessari vinnu, að fyrir liggi skýr stefna um það hvernig haga skuli afmörkun lóða innan sveitarfélaga þar sem er að finna mannvirki, stíflur, stöðvarhús og lón á vegum orkufyrirtækjanna. Forsætisráðuneytið mun hefja vinnuna og halda utan um verkefnið.

Þess er óskað að sveitarfélögin kynni sér meðfylgjandi erindi. Athugasemdir þurfa að hafa borist Sambandi íslenskra sveitarfélaga fyrir 1. mars 2016.

Bæjarráð vísar erindi til umsagnar deildarstjóra tæknideildar.

7.TISA - fríverslunarsamningur (Trade in Service Agreement)

Málsnúmer 1601029Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar fundarboð stjórnmálasamtakanna Dögunar vegna TISA samningana, sem haldinn verður í Norræna húsinu 28. janúar 2016.

Fundi slitið.