Bæjarráð Fjallabyggðar

409. fundur 22. september 2015 kl. 16:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Steinunn María Sveinsdóttir formaður, S lista
  • Kristinn Kristjánsson varaformaður, F lista
  • Helga Helgadóttir aðalmaður, D lista
  • Sólrún Júlíusdóttir áheyrnarfulltrúi, B lista
  • Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri
  • Ólafur Þór Ólafsson deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson deildarstjóri stjórnsýslu- og fjármála

1.Skipurit

Málsnúmer 1412020Vakta málsnúmer

Undir þessum dagskrárlið vék Helga Helgadóttir D-lista af fundi og í hennar stað kom S. Guðrún Hauksdóttir.

Fyrirhugaðar skipuritsbreytingar teknar til umræðu.

Deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála kynnti samanburðartölur og vék síðan af fundi undir þessum dagskrárlið.

Bæjarráð samþykkir að vísa tillögu að skipulagsbreytingum til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

2.Leiktæki á lóð Grunnskóla Fjallabyggðar

Málsnúmer 1509065Vakta málsnúmer

Vegna slysahættu af leiktæki á skólalóð grunnskólans á Siglufirði, samþykkir bæjarráð að fela deildarstjóra tæknideildar að láta fjarlægja hjólabrettaramp af skólalóð grunnskólans.

3.Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2015/2016

Málsnúmer 1509024Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, dagsett 2. september 2015, þar sem ráðuneytið gefur bæjar- og sveitarstjórnum kost á að sækja um byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2015/2016 á grundvelli 10. gr. laga nr. 116/2006, með síðari breytingum. Umsóknarfrestur er til 30. september n.k.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að sækja um fyrir Fjallabyggð.

4.Mannskaps- og tækjabifreið slökkviliðs Fjallabyggðar Ólafsfirði

Málsnúmer 1509032Vakta málsnúmer

Lagt fram tilboð í mannskaps og tækjabíl fyrir Slökkvilið Fjallabyggðar frá fyrirtækinu Ósland ehf. sem sérhæft er í smíði og framleiðslu á slökkvibifreiðum.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra og slökkviliðsstjóra að ganga til samninga við fyrirtækið.
Jafnframt heimilar bæjarráð sölu á eldri mannskaps- og tækjabíl.

Fundi slitið.