Bæjarráð Fjallabyggðar

292. fundur 16. apríl 2013 kl. 17:00 - 18:00 á bæjarskrifstofum Ólafsvegi 4, Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Þorbjörn Sigurðsson formaður
  • Helga Helgadóttir aðalmaður
  • Egill Rögnvaldsson aðalmaður
  • Sigurður V Ásbjarnarson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Sigurður Valur Ásbjarnarson bæjarstjóri

1.Aðalfundur Tækifæris hf. 2013

Málsnúmer 1304018Vakta málsnúmer

Aðalfundur Tækifæris hf. verður haldinn föstudaginn 19. apríl n.k. að Strandgötu 3 á Akureyri.
Dagskrá fundarins er í samræmi við samþykktir félagsins, en á fundinum verða lagðar fram tvær tillögur. Sú fyrri er um heimild stjórnar um að auka hlutaféð um 400 m.kr. verði felld út og hin síðari fjallar um að gera félaginu kleift að eignast eigin bréf verði framlengd.

Bæjarráð felur bæjarstjóra umboð Fjallabyggðar.

2.Alþingiskosningar 27. apríl 2013

Málsnúmer 1303055Vakta málsnúmer

a) Á kjörskrá í Fjallabyggð eru 787 konur og 807 karlar, eða alls 1594.
Bæjarráð samþykkir framlagða kjörskrá.

b) Kjörstaðir í Fjallabyggð verða sem fyrr tveir, í Ráðhúsinu á Siglufirði og Menntaskólanum í Ólafsfirði.
Kjörfundur hefst kl. 10:00 í báðum kjördeildum og verður slitið eigi síðar en kl. 22:00.

3.Ósk um styrk vegna 50 ára afmælis Húna II

Málsnúmer 1304011Vakta málsnúmer

Formaður félags hollvina bátsins Húna II vill koma því á framfæri að báturinn verður hálfrar aldar gamall í ár og er ætlunin að sigla honum austur um land og koma við í helstu höfnum landsins. Sótt er um styrk sem nemur hafna- og aðstöðugjöldum, þegar ætlunin er að koma til Siglufjarðar. Gert er ráð fyrir að Húni II verði hér miðvikudaginn 22. maí n.k.

Nemendum á öllum aldri í Fjallabyggð verður boðið að skoða bátinn af þessu tilefni.
Knörrinn frá Húsavík verður með í för, en það skip var byggt á sama tíma.

Bæjarráð telur rétt að taka þátt í verkefninu og samþykkir styrkbeiðnina.

4.Erindi frá íbúum við Eyrarflöt á Siglufirði vegna lyktarmengunar

Málsnúmer 1304030Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri lagð fram bréf frá íbúum við Eyrarflöt á Siglufirði, en bréfið er skrifað vegna mikillar lyktarmengunar á svæðinu.

Bæjarstjóri upplýsti bæjarráð um að verið sé að vinna að lausn málsins með Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra og að málið sé til afgreiðslu á næsta fundi fagnefndar bæjarfélagsins.

Bæjarráð leggur áherslu á að lausn finnist á þessu vandamáli hið fyrsta.

 

5.Fundur í Vettvangsstjórn Fjallabyggðar 2. apríl 2013

Málsnúmer 1304010Vakta málsnúmer

Fundur var í vettvangsstjórn Fjallabyggðar 2. apríl sl., en til fundarins var boðað í tengslum við boðað óvissustig vegna jarðskjálfta úti fyrir Norðurlandi.

Bæjarstjóri gat þess að búið er að boða til fundar um viðbragðsáætlun bæjarfélagsins nk. fimmtudag.

6.Mánaðarleg launayfirlit 2013

Málsnúmer 1303045Vakta málsnúmer

Mánaðarlegt yfirlit lagt fram til kynningar fyrir janúar - mars. Niðurstaðan er 193,5 m.kr. sem er 99% af áætlun.

Bæjarstjóra falið að leita skýringa hjá deildarstjórum, skólastjórum og forstöðumönnum á þeim liðum sem eru fram úr áætlun og þeirra viðbrögðum er varðar samþykkta fjárhagsáætlun.

7.Fundargerð Almannavarna Eyjafjarðar (Almey) frá 26. mars 2013

Málsnúmer 1304033Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar.

8.Snjómokstur að og frá Fjallabyggð

Málsnúmer 1304032Vakta málsnúmer

Bæjarfélagið hefur verið lokað af sjö sinnum - aðallega um helgar vegna snjóa í vetur. Vegna margra fyrirspurna er bæjarstjóra falið að ræða málið við Vegagerð ríkisins og leita skýringa.

9.Sumarstörf 2013 - atvinnuátak

Málsnúmer 1304031Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá Vinnumálastofnun dags. 15. apríl, en í því kemur fram að ráðast á í átaksverkefni til að fjölga tímabundnum störfum fyrir námsmenn í sumar, með líkum hætti og hefur verið gert sl. sumur.

10.Fundir deildarstjóra Fjallabyggðar 2013

Málsnúmer 1301043Vakta málsnúmer

Fundargerð frá 10. apríl, lögð fram til kynningar.

11.Fundagerðir stjórnar Hornbrekku 2013

Málsnúmer 1301027Vakta málsnúmer

Fundargerð stjórnar Hornbrekku frá 19. mars sl., lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 18:00.