Bæjarráð Fjallabyggðar

283. fundur 15. janúar 2013 kl. 16:00 - 16:00 í Ráðhúsinu Gránugötu 24 Siglufirði
Nefndarmenn
  • Þorbjörn Sigurðsson formaður
  • Helga Helgadóttir aðalmaður
  • Egill Rögnvaldsson aðalmaður
  • Sigurður V Ásbjarnarson bæjarstjóri
  • Ólafur Þór Ólafsson skrifstofu- og fjármálastjóri
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson skrifstofu- og fjármálastjóri

1.Beiðni um yfirfærslu fjármagns frá 2012

Málsnúmer 1301021Vakta málsnúmer

Í erindi fræðslu- og menningarfulltrúa frá 7. janúar s.l. er lögð fram beiðni um yfirfærslu ónýttrar fjárheimildar frá 2012 vegna viðgerða á listaverkum í eigu Fjallabyggðar yfir á fjárhagsáætlun 2013.
Bæjarráð samþykkir aukafjárveitingu að upphæð 1.000.000,- sem komi af óráðstöfuðum fjárhagslið í fjárhagsáætlun 2013.

2.Ráðning forstöðumanns Bóka-og héraðsskjalasafns Fjallabyggðar

Málsnúmer 1212022Vakta málsnúmer

Á 60. fundi menningarnefndar var eftirfarandi bókað:

"Auglýst hefur verið eftir forstöðumanni Bóka- og héraðsskjalasafns Fjallabyggðar. Fjórar umsóknir bárust.
Sigríður Halldóra Gunnarsdóttir var sú eina sem uppfyllti þær menntunar- og hæfniskröfur sem auglýst var eftir og leggur menningarnefnd til við bæjarráð að hún verði ráðin til starfsins."


Bæjarstjóri lagði fram tölvupóst frá einum umsækjanda og eftir umræður og yfirferð þá var eftirfarandi fært til bókar.

Bæjarráð samþykkir að ráða Sigríði Halldóru Gunnarsdóttur í starf forstöðumanns Bóka- og héraðsskjalasafns Fjallabyggðar.

3.Fundartími og fundarstaður bæjarráðs

Málsnúmer 1301033Vakta málsnúmer

Eftirfarandi tillaga að fundartíma bæjarráðs var lögð fram af fulltrúum meirihluta.
"Bæjarráð hefur gert ákveðnar breytingar á fundartíma sínum á kjörtímabilinu og í framhaldi af síðasta fundi þá hefur verið rætt um, innan meirihlutans, að breyta þeirri samþykkt með eftirfarandi hætti.
Fundir bæjarráðs verði á þriðjudögum kl. 17.00, eins og var í upphafi kjörtímabilsins.
Tveir fundir á Ólafsfirði og einn á Siglufirði.

Lögð er áhersla á að það þarf að ná sátt um fundartíma í bæjarráði, til að bæjarfulltrúar geti sinnt sínum lögbundnu störfum, án þess að það rekist alvarlega á önnur verkefni eða skyldur þeirra.

Á síðasta ári var þessu þannig háttað að fundir bæjarráðs voru á þriðjudögum kl. 16.00.
Tveir fundir voru á Siglufirði og einn á Ólafsfirði."


Tillaga samþykkt með 2 atkvæðum. 
Egill Rögnvaldsson greiddi atkvæði á móti tillögunni.

4.Skipulag heilbrigðisþjónustu á Norðurlandi

Málsnúmer 1301049Vakta málsnúmer

Vegna áforma Velferðarráðuneytisins um hugsanlegar breytingar á skipulagi heilbrigðisþjónustu við utanverðan Eyjafjörð, samþykkir bæjarráð að fela bæjarstjóra að taka upp viðræður við heilbrigðisráðherra um framtíðarskipulag heilbrigðisþjónustunnar við utanverðan Eyjafjörð, ásamt bæjarstjóra Dalvíkurbyggðar.

 

5.Framtíðaráform fyrir Skíðasvæðið í Skarðsdal með hliðsjón af snjóflóðahættu

Málsnúmer 1301022Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar minnisblað frá Veðurstofu Íslands frá 12. desember 2012 fyrir Leyningsás ehf um framtíðaráform fyrir Skíðasvæðið í Skarðsdal með hliðsjón af snjóflóðahættu.  Einnig greinargerð Verkfræðistofu Siglufjarðar um athuganir, sem gerðar voru á möguleikum á að fullnægja öryggiskröfum á svæðinu.

6.Upplýsingabréf varðandi úrgangsmálin

Málsnúmer 1301023Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar upplýsingabréf til eigenda Flokkunar frá 21.12.2012.  

Einnig minnisblað frá umhverfisfulltrúa Fjallabyggðar um sérmeðhöndlun sorps í sveitarfélaginu.

Bæjarráð telur rétt að haldinn verði samráðsfundur á vegum Eyþings um stöðu fyrirtækisins og framtíð brennslu úrgangs.

7.Fundir deildarstjóra Fjallabyggðar 2013

Málsnúmer 1301043Vakta málsnúmer

Fundargerð frá 10. janúar 2013 lögð fram til kynningar.
Bæjarráð samþykkir að vísa til umræðu í ungmennaráði minnispunktum sem fram koma í fundargerð um rýmisþörf félagsmiðstöðva.

8.Varðveisla gamalla muna í skólahúsinu við Hlíðarveg

Málsnúmer 1301013Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri kynnti áform um yfirferð og varðveislu gamalla muna sem eru til geymslu í skólahúsnæðinu við Hlíðarveg á Siglufirði.

Fundi slitið - kl. 16:00.