Bæjarráð Fjallabyggðar

278. fundur 20. nóvember 2012 kl. 16:00 - 18:00 í Ráðhúsinu Gránugötu 24 Siglufirði
Nefndarmenn
  • Helga Helgadóttir aðalmaður
  • Þorbjörn Sigurðsson varamaður
  • Sólrún Júlíusdóttir varamaður
  • Sigurður V Ásbjarnarson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Sigurður Valur Ásbjarnarson bæjarstjóri

1.Beiðni um styrk - Stígamót

Málsnúmer 1211018Vakta málsnúmer

Stígamót leggur fram fjárbeiðni fyrir árið 2013.

Bæjarráð hafnar styrkbeiðni að þessu sinni.

2.Beiðni um tilfærslu liða innan málaflokks 04 fyrir árið 2012

Málsnúmer 1211030Vakta málsnúmer

Fræðslu og menningarfulltrúi óskar eftir því að tekjuliður vegna vistunar barna sé færður af skólaskrifstofu, yfir á grunnskóla fyrir árið 2012.

Bæjarráð samþykkir framkomna tillögu.

3.Biðskýli

Málsnúmer 1210068Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri óskar eftir fjárheimild til að setja upp biðskýli við Langeyrarveg á Siglufirði og er áætlaður kostnaður um 3.5 m.kr.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að framkvæmdinni verði lokið sem fyrst og að umrædd fjárheimild verði samþykkt.

4.Bótakrafa vegna flugskýlis

Málsnúmer 1010006Vakta málsnúmer


Bæjarstjóri óskar eftir fjárheimild til að greiða bætur fyrir flugskýlið í Ólafsfirði og er áætlaður heildarkostnaður bæjarfélagsins um 9.5 m.kr.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að umrædd fjárheimild verði samþykkt.

5.Fjárhagsleg viðmið sveitarstjórnarlaga

Málsnúmer 1207025Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá Innanríkisráðuneytinu dags. 7. nóvember 2012, þar sem bæjarfélaginu er veittur frestur til 20. desember til að skila inn upplýsingum um fjárhagsleg viðmið skv. 16.gr. reglugerðar nr. 50/2012. 
Lagt fram til kynningar.

6.Gjaldskrá fyrir hafnarsjóð Fjallabyggðar 2012

Málsnúmer 1211016Vakta málsnúmer

Gjaldskrá fyrir hafnarsjóð lögð fram til umræðu, en hún á að taka gildi frá og með 01.01.2013.

Bæjarráð telur rétt að vísa afgreiðslu hennar og staðfestingu til bæjarstjórnar án athugasemda.

7.Stuðingur við ráðstefnuna North Atlantic Forum,Hólum 13. - 15. júní 2013

Málsnúmer 1211042Vakta málsnúmer

Óskað er eftir beinum fjárstuðningi vegna ráðstefnu sem verður í júní á næsta ári, en þema hennar er ferðaþjónusta í dreifbýli.

Bæjarráð leggur til og felur bæjarstjóra að taka á móti um 60 manna hóp sem mun m.a. skoða Síldarminjasafnið.

Samþykkt samhljóða.

8.Stuðningur við Snorraverkefni 2013

Málsnúmer 1211032Vakta málsnúmer

Snorraverkefnið óskar eftir stuðningi og fjárbeiðni fyrir árið 2013.

Bæjarráð hafnar styrkbeiðni að þessu sinni.

9.Tillögur um atvinnuátakið VINNA OG VIRKNI

Málsnúmer 1211048Vakta málsnúmer

Meginmarkmið verkefnisins er að virkja atvinnuleitendur, sem hafa fullnýtt eða munu að óbreyttu fullnýta rétt sinn innan atvinnuleysistryggingakerfisins, til þátttöku að nýju á vinnumarkaði og koma í veg fyrir að langvarandi atvinnuleysi leiði til ófærni.

Bæjarráð telur rétt að vísa málinu til félagsmálanefndar.

10.Umsókn um rekstrarstyrk fyrir árið 2013

Málsnúmer 1211031Vakta málsnúmer

Samtök um kvennaathvarf leggur fram ósk um rekstrarstyrk fyrir árið 2013.

Bæjarráð hafnar styrkbeiðni að þessu sinni.

11.Umsókn um styrk - Landsbyggðin lifi

Málsnúmer 1211019Vakta málsnúmer

Landsbyggðin lifi óskar eftir styrk fyrir árið 2013.

Bæjarráð hafnar styrkbeiðni að þessu sinni.

12.Úthlutun framlaga vegna sölu félagslegra íbúða

Málsnúmer 1211052Vakta málsnúmer

Varasjóður húsnæðislána hefur úthlutað Fjallabyggð kr. 782.634.- vegna sölu á fasteign í Bylgjubyggð.

Lagt fram til kynningar.

13.Varðandi fyrirhugaðra byggingaframkvæmda á malarvelli við Túngötu Siglufirði

Málsnúmer 1211011Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf undirritað af Stefáni Einarssyni dags. 25.10.2012 um fyrirhugaðar byggingarframkvæmdir á Siglufirði.

Bæjarstjóri lagði fram upplýsingar um byggingarlóðir sem gætu komið til greina.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara um framkomnar tillögur vegna lóða sem eru byggingarhæfar í dag.

14.Endurnýjun á samstarfssamningi við Markaðsstofu Norðurlands

Málsnúmer 1211008Vakta málsnúmer

Óskað er eftir því að bæjarstjórn Fjallabyggðar endurnýji samstarfssamninginn til ársloka 2015.

Samþykkt samhljóða.

15.Fjárhagsáætlun 2013 og 2014 - 2016

Málsnúmer 1209099Vakta málsnúmer

Sólrún Júlíusdóttir lagði fram bókun undir þessum dagskrárlið.

Minnihluti lýsir yfir miklum vonbrigðum að ekki skuli vera ætlunin að hagræða meira í rekstri bæjarsjóðs en áform eru um. Minnihluti tekur heilshugar undir hagræðingatillögur Hafnarstjórnar, en meirihlutinn kýs að bíða eftir stjórnsýsluúttekt og fresta því hagræðingu. Þá er nauðsynlegt að taka til í yfirstjórn.
Sé þörf á stjórnsýsluúttekt áður en hagrætt sé í ákveðnum málaflokkum, þá væri ráð að fresta viðbyggingu í Grunnskólanum og fá stjórnsýsluúttekt á þeim áformum.
Þá lýsir minnihlutinn yfir miklum áhyggjum af rekstri sjávarútvegs á næsta ári, ýmsar vísbendingar eru um það að það verði veruleg tekjuskerðing til sjómanna vegna kjarasamninga og ytri aðstæðna í markaðsmálum. Þetta gæti leitt til lækkunar útsvarstekna Fjallabyggðar og því er rétt að gæta varúðar í áætlanagerð komandi árs.

Meirihluti bæjarstjórnar áskilur sér rétt til bókunar á næsta fundi bæjarráðs.

16.Rekstraryfirlit 30. september 2012

Málsnúmer 1211045Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

 

17.Ósk um endurskoðun tillagna um skiptingu byggðakvóta í Fjallabyggð

Málsnúmer 1211059Vakta málsnúmer

Formaður bæjarráðs bauð forsvarsmenn Siglunes og Útg. Nes velkomna á fundinn. Gerðu þeir bæjarfulltrúum grein fyrir bréfi sem þeir sendu á ráðuneytið er varðar þeirra rekstur. Svör ráðuneytisins voru lögð fram á fundinum. Bæjarráð telur rétt að kynna sér betur spurningar og svör ráðuneytisins til næsta fundar.

Bæjarstjóra er falið að láta ráðuneytið vita um þá niðurstöðu og óska eftir frest fram í lok næstu viku

 

 

18.Launayfirlit janúar - október 2012

Málsnúmer 1211038Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

19.Frumvörp um B- gatnagerðargjald og tekjustofna sveitarfélaga

Málsnúmer 1210090Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 18:00.