Bæjarráð Fjallabyggðar

270. fundur 11. september 2012 kl. 16:00 - 19:00 í Grunnskóla Fjallabyggðar - Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Ólafur Helgi Marteinsson formaður
  • Bjarkey Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Egill Rögnvaldsson aðalmaður
  • Sigurður V Ásbjarnarson bæjarstjóri
  • Ólafur Þór Ólafsson skrifstofu- og fjármálastjóri
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson skrifstofu- og fjármálastjóri

1.Fundur sveitarstjórna með fjárlaganefnd Alþingis haustið 2012

Málsnúmer 1209014Vakta málsnúmer

Fjárlaganefnd Alþingis býður fulltrúum sveitarfélaga til viðtals um fjármál sveitarfélaga í tengslum við vinnu fjárlaganefndar vegna fjárlagafrumvarps 2013.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að leggja erindi Fjallabyggðar fyrir nefndina með sama hætti og á síðasta fjárhagsári.

2.Starfsmannamál í Tjarnarborg

Málsnúmer 1208088Vakta málsnúmer

Niðurstaða menningarnefndar frá 5.9.2012 lögð fram til umræðu í bæjarráði en Diljá Helgadóttir nýráðinn forstöðumaður Tjarnarborgar hefur sagt upp starfi sínu.

Bæjarráð telur rétt í samræmi við ábendingar frá lögmanni Sambands íslenskra sveitarfélaga að auglýsa starfið að nýju.

3.Þjónustusamningur um bókasafn og upplýsingamiðstöð Fjallabyggðar í Ólafsfirði

Málsnúmer 1208003Vakta málsnúmer

Bjarkey Gunnarsdóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa dagskrárliðar.
Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við Bolla og bedda ehf.
Bæjarstjóri lagði fram undirskriftarlista með 173 nöfnum þar sem því er mótmælt að bókasafninu í Ólafsfirði verði lokað og rekstri þess verði breytt.

Bæjarráð telur að ekki sé verið að skerða þjónustu við íbúa bæjarfélagsins, þvert á móti gefist tækifæri til að auka hana með samningi við Bolla og bedda ehf.

4.Umferðaröryggi í Fjallabyggð - Minnisblað

Málsnúmer 1209018Vakta málsnúmer

Lögð fram greinargerð frá Vegagerðinni um umferðaröryggi á Siglufirði og í Ólafsfirði.

Bæjarráð felur tæknideild bæjarfélagsins að hefja framkvæmdir við stoppistöðvar hið fyrsta í fullu samræmi við ráðleggingar og tillögur Vegagerðarinnar.

5.Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2012

Málsnúmer 1209020Vakta málsnúmer

Ársfundur Jöfnunarsjóðsins fer fram miðvikudaginn 26. september nk. á Hilton hóteli í R.vík.
Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri taki þátt í fundinum f.h. Fjallabyggðar.

6.Áskriftarréttur að hlutafé

Málsnúmer 1209010Vakta málsnúmer

Á aðalfundi í einkahlutafélaginu Greið leið ehf var stjórn félagsins veitt heimild til að hækka hlutafé félagsins um 100 m.kr.

Eindagi greiðslu miðast við 5. október og er hlutur Fjallabyggðar kr. 66.272.-
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að Fjallabyggð skrái sig fyrir umræddri hækkun.

7.Dagur gegn einelti

Málsnúmer 1209024Vakta málsnúmer

Verkefnastjórn um aðgerðir gegn einelti hefur ákveðið að helga 8. nóvember á ári hverju baráttunni gegn einelti.

Lagt fram til kynningar.

8.Kjörskrárstofnar vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 20. október 2012

Málsnúmer 1209011Vakta málsnúmer

Viðmiðunardagur kjörskrár verður 29. september 2012 en samkvæmt 22. gr. laga nr. 24.2012 um kosningar til alþingis skulu sveitarstjórnir gera kjörskrá á grundvelli kjörskrárstofna sem Þjóðskrá Íslands lætur þeim í té.

Lagt fram til kynningar.

9.Lánsumsókn vegna snjóflóðavarna 2011

Málsnúmer 1207042Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá skrifstofu- og fjármálastjóra til Ofanflóðanefndar er varðar lánsumsókn vegna snjóflóðavarna 2011.

Bókfærður kostnaður á árinu 2011 var í Fjallabyggð kr. 9.132.967.- og er lánið 10% af þeirri upphæð eða kr. 913.297.-

Lagt fram bréf frá umhverfisráðuneytinu dags. 31. ágúst 2012 þar sem umbeðið lán er samþykkt.
Bæjarráð heimilar bæjarstjóra að undirrita skuldabréfið.

10.Stofnfundur MýSköpunar 12. september 2012

Málsnúmer 1209021Vakta málsnúmer

Stofnfundur MýSköpunar verður haldinn í Reykjahlíð miðvikudaginn 12. september n.k.

Lagt fram til kynningar.

11.Uppgjör á framlagi vegna lækkaðra fasteignaskattstekna 2012

Málsnúmer 1209022Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf frá Innanríkisráðuneytinu vegna uppgjörs á framlagi vegna lækkaðra fasteignaskattstekna á árinu 2012.

Heildarframlag er kr.87.804.724.-, en í áætlun sveitarfélagsins var gert ráð fyrir framlagi að upphæð 89.350.000,-

12.Fundir deildarstjóra Fjallabyggðar 2012

Málsnúmer 1201046Vakta málsnúmer

Fundargerð frá 6. september s.l. lögð fram til kynningar.

13.Aðalfundur Seyru ehf 31. ágúst 2012

Málsnúmer 1208063Vakta málsnúmer

Fundargerð lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 19:00.