Bæjarráð Fjallabyggðar

247. fundur 21. febrúar 2012 kl. 16:00 - 19:00 í Ráðhúsinu Gránugötu 24 Siglufirði
Nefndarmenn
  • Ólafur Helgi Marteinsson formaður
  • Bjarkey Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Egill Rögnvaldsson aðalmaður
  • Sigurður V Ásbjarnarson bæjarstjóri
  • Ólafur Þór Ólafsson skrifstofu- og fjármálastjóri
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson skrifstofu- og fjármálastjóri

1.Fyrirspurn frá Alþingi um skuldir sveitarfélaga og endurfjármögnun

Málsnúmer 1202057Vakta málsnúmer

Lagðar fram upplýsingar um skuldir Fjallabyggðar í samræmi við óskir og fyrirspurnir frá Alþingi og innanríkisráðuneyti.

Um er að ræða annars vegar skuldir og endurfjármögnun lána vegna A-hluta og hins vegar vegna B-hluta.

 

 

2.Ósk um niðurfellingu á gjaldi vegna stöðuleyfis gáms

Málsnúmer 1202053Vakta málsnúmer

Skotfélag Ólafsfjarðar óskar eftir styrk til greiðslu á stöðuleyfi á gám þeirra að upphæð kr. 20.000.-

Bæjarráð samþykkir fram komna ósk.

3.Skrá um kjörna landsþingsfulltrúa 2010-2014

Málsnúmer 1202055Vakta málsnúmer

Ákveðið hefur verið að XXVI. landsþing sambandsins verði haldið föstudaginn 23. mars 2012 á Hótel Reykjavík.

Meðfylgjandi er skrá yfir kjörna landsfundarfulltrúa en þeir eru kosnir í upphafi hvers kjörtímabils og gildir sú kosning út kjörtímabil sveitarstjórnar.

Lagt fram til kynningar.

4.Skil á fjárhagslegum upplýsingu sveitarfélaga

Málsnúmer 1202067Vakta málsnúmer

Á síðasta ári hóf Hagstofa Íslands að taka saman upplýsingar um fjárhagslega stöðu sveitarfélaga á hverju þriggja mánaða tímabili. Skilin eru á grundvelli reglugerðar nr. 395/2011.

Í erindi Hagstofu Íslands frá 16. febrúar sl. er vakin athygli á skyldu sveitarfélaga til að afhenda fjárhagslegar upplýsingar og í leiðinni tekið fram að ekki sé verið að tala um formleg uppgjör sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar.

5.Fyrirspurn vegna byggðakvóta

Málsnúmer 1202065Vakta málsnúmer

Formaður Smábátafélagsins Skalla leggur fram fyrirspurn um skiptingu byggðakvóta áranna 2008 til 2010 og hvar aflinn var unninn.
Bæjarráð vill árétta að það hvorki úthlutar byggðakvóta né hefur eftirlit með vinnslu hans.

Bæjarráð gerir tillögu, samkv. lögum og reglugerðum, um almennar reglur sem gilda við úthlutun byggðakvóta. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið samþykkir reglurnar og felur Fiskistofu úthlutun og eftirlit.
Bæjarráð telur rétt að benda formanni Smábátafélagsins Skalla á að beina fyrirspurn sinni til Fiskistofu sem sér um úthlutun á byggðakvóta og eftirlit með ráðstöfun hans.
Að öðru leyti vísast til samþykktar bæjarráðs 17. janúar 2012 og bæjarstjórnar 18. janúar 2012.

6.Rekstrarleigusamningur slökkvibifreiðar LN-415

Málsnúmer 1202071Vakta málsnúmer

Í tengslum við uppgjör á rekstrarleigusamningi frá 2003 vegna slökkvibifreiðar hjá sveitarfélaginu, liggur fyrir yfirlýsing frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands, þar sem fallið er frá endurkauparétti á bifreiðinni.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að ljúka samningi við Lýsingu vegna eignarréttar sveitarfélagsins á slökkvibifreiðinni LN-415. 
Gert er ráð fyrir að upphæðin verði færð til gjalda 2011.

7.Greiðsla fatapeninga til ófaglærðra starfsmanna í leikskólum

Málsnúmer 1202035Vakta málsnúmer

Fyrir bæjarráði liggur tillaga um verklag og upphæð vegna endurgreiðslu á kaupum á vinnufatnaði, skv. kjarasamningum frá 1. júní 2011, grein 8.2.5. g.
Bæjarráð samþykkir að leita álits kjarasviðs Sambands ísl. sveitarfélaga á tillögunni áður en til afgreiðslu kemur.

8.Skuldir og skuldbindingar í hlutfalli af tekjum sveitarfélagsins

Málsnúmer 1202068Vakta málsnúmer

Lagðar fram upplýsingar um skuldir og skuldbindingar í hlutfalli af tekjum í Fjallabyggð en hún hefur farið lækkandi síðustu árin og er nú um 98%.

Viðmiðun hjá sveitarfélögum er að skuldir og skuldbindingar fari ekki yfir 150%.

Lagt fram til kynningar.

9.Minnisblað vegna skipulags útivistarsvæða í Hóls- og Skarðsdal

Málsnúmer 1202066Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar minnisblað bæjarstjóra frá 14.09.2012.

10.Hluthafafundur 16. febrúar 2012 - Fundarboð

Málsnúmer 1202042Vakta málsnúmer

Hluthafafundur Greiðar leiðar ehf. fór fram 16. febrúar s.l.
Rétt er að vísa í afgreiðslu bæjarráðs sjá 7.mál,  nr. 1201082 frá 244. fundi bæjarráðs þann 31. janúar 2012.

Lagt fram til kynningar.

11.Ályktun kirkjuþings 2011

Málsnúmer 1202052Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar.

12.Breytilegir útlánavextir

Málsnúmer 1202021Vakta málsnúmer

Lagðar fram upplýsingar um lækkun á breytilegum útlánavöxtum Lánasjóðsins í 3.45% úr 3.90% frá og með 1. febrúar 2012.
Vaxtakostnaður Fjallabyggðar á lántöku ársins mun verða lægri, um 675 þúsund á ársgrundvelli miðað við þessar upplýsingar.
Lagt fram til kynningar.

13.Uppgjör framlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga á árinu 2011

Málsnúmer 1202062Vakta málsnúmer

Lagðar fram upplýsingar um framlög til Fjallabyggðar fyrir árið 2011.

Fundi slitið - kl. 19:00.