Bæjarráð Fjallabyggðar

246. fundur 14. febrúar 2012 kl. 16:00 - 19:00 í fundarherbergi í Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Ólafur Helgi Marteinsson formaður
  • Bjarkey Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Egill Rögnvaldsson aðalmaður
  • Sigurður V Ásbjarnarson bæjarstjóri
  • Ólafur Þór Ólafsson skrifstofu- og fjármálastjóri
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson skrifstofu- og fjármálastjóri

1.Afhending líkans Elliða SI 1, 21. júlí nk.

Málsnúmer 1202028Vakta málsnúmer

Í tölvupósti frá Gunnari Trausta f.h. félagsskaparins Hafliða SI 2, er óskað eftir viðræðum við sveitarfélagið um framkvæmd afhendingar líkans af nýsköpunartogaranum Elliða SI 1, þann 21. júlí n.k. á Siglufirði.

Bæjarráð samþykkir styrk að upphæð 30 þúsund og felur menningafulltrúa að sjá um samskipti við félagið.

2.Bylgjubyggð 55 - Söluheimild

Málsnúmer 1202029Vakta málsnúmer

Þar sem húsaleigusamningi vegna Bylgjubyggðar 55 í Ólafsfirði hefur verið sagt upp og húsnæðið laust frá 1. apríl 2012, óskar skrifstofu- og fjármálastjóri eftir heimild til að setja umrædda húseign á sölu með möguleika á skammtímaleigu á meðan á söluferli stendur.
Bæjarráð samþykkir söluheimild fyrir Bylgjubyggð 55 í Ólafsfirði.

3.Fasteignagjöld 2012

Málsnúmer 1202039Vakta málsnúmer

Fyrir bæjarráði liggur minnisblað skrifstofu- og fjármálastjóra í sjö liðum um fasteignagjöld 2012, álagningu þeirra, álagningarprósentur, afsláttarreglur og vanskilainnheimtu.
Við fjárhagsáætlunargerð 2012 var samþykkt að álagningarprósentur yrðu óbreyttar frá fyrra ári.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að semja um endurnýjun samnings um innheimtu vanskilakrafna við Momentum greiðsluþjónustu ehf. og Gjaldheimtunnar ehf.

Bæjarráð samþykkir að taka til umfjöllunar álagningarprósentu á gripahús á skipulögðum svæðum í þéttbýli, þegar Alþingi hefur lokið umfjöllun um 3. grein laga um tekjustofna sveitarfélaga.

4.Lóðarleigusamningur í Skarðsdal - búsetukvöð

Málsnúmer 1202043Vakta málsnúmer

Tekinn til umfjöllunar samningur um lóðina Valló í Skarðsdal l.nr. 197278 undir sumarbústað, sem ekki fékkst þinglýstur á sínum tíma vegna búsetukvaðar.
Gengið hefur verið tvívegis frá lóðarleigusamningi fyrir umrædda eign, sjá m.a. bókun frá 12. nóvember 2003.
Fyrir bæjarráði liggja upplýsingar Umhverfisráðuneytisins frá 1994 vegna sambærilegs máls á Ísafirði, þar sem skilyrði við bústetu var takmarkað og þeirri kvöð þinglýst.


Bæjarráð felur bæjarstjóra að gera breytingar á kvöðum sem uppfylla þinglýsingu á lóðarleigusamningi.

Egill Rögnvaldsson vék af fundi við afgreiðslu þessa dagskrárliðar.

5.Stofnun og umboð fyrir byggingarreikning fyrir Grunnskóla Fjallabyggðar

Málsnúmer 1202044Vakta málsnúmer

Bæjarráð samþykkir að veita bæjarstjóra umboð til að ganga frá stofnun byggingarreiknings í Arion banka fyrir Grunnskóla Fjallabyggðar.

Jafnframt var samþykkt úttektar og aðgangsheimild fyrir bæjarstjóra og skrifstofu- og fjármálastjóra.

6.Tilkynning um að rekstrarleyfi er að renna út

Málsnúmer 1202047Vakta málsnúmer

Í erindi Sýslumanns á Siglufirði er tilkynnt að rekstrarleyfi Tjarnarborgar í Ólafsfirði á grundvelli laga nr 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald renni út 1. mars n.k. 

Bæjarráð samþykkir að sækja um endurnýjun rekstrarleyfis.

7.Trúnaðarmál - Lögfræðiálit

Málsnúmer 0811113Vakta málsnúmer

Lögfræðiálit lagt fram til kynningar.

8.Ársskýrsla 2011 - Slökkvilið Fjallabyggðar

Málsnúmer 1202018Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar ársskýrsla Slökkviliðs Fjallabyggðar fyrir árið 2011.

9.Ungmennaráð Fjallabyggðar tekur til starfa

Málsnúmer 1202033Vakta málsnúmer

Í tilkynningu Íþrótta- og tómstundafulltrúa Fjallabyggðar, kemur fram tillaga um skipan Ungmennaráðs Fjallabyggðar.

Aðalmenn verði:

Brynja Sigurðardóttir MTR
Guðni Brynjólfur Ásgeirsson MTR
Sigurjón Ólafur Sigurðarson MTR
Sveinn Andri Jóhannsson GF og
Sigurbjörg Áróra Ásgeirsdóttir GF

Varamenn:
Marinó Jóhann Sigursteinsson GF
Sigurður Björn Gunnarsson MTR
Eva Rún Þorsteinsdóttir MTR og
Magnús Andrésson MTR

Kynningarfundur var haldinn í ráðhúsinu Siglufirði 13. febrúar, þar sem deildarstjórar funduðu með ungmennaráði.

Bæjarráð vísar tillögu að nefndarskipan til bæjarstjórnar.

10.Launayfirlit - janúar 2012

Málsnúmer 1202025Vakta málsnúmer

Skrifstofu- og fjármálastjóri lagði fram launayfirlit fyrir janúar 2012. Gerði hann grein fyrir helstu frávikum frá áætlun ársins.
Niðurstaða launayfirlits er 104,7% eða um 3 m.kr. umfram áætlun.

11.Lánayfirlit 31. janúar 2012

Málsnúmer 1202024Vakta málsnúmer

Skrifstofu- og fjármálastjóri lagði fram lánayfirlit fyrir Fjallabyggð 31. janúar 2012. 
Nettóstaða skulda er 858 milljónir.

12.Snjóflóðavarnir í Siglufirði - staða framkvæmda

Málsnúmer 1106111Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar framkvæmdaáætlun vegna snjóflóðavarna í Siglufirði 2012-2020.
Fyrirhugaður er fundur Umhverfisráðuneytis í næsta mánuði til yfirferðar á forsendum framkvæmdaáætlunarinnar.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að óska eftir því að fulltrúi sveitarfélagsins fái að sækja þennan fund.

13.Til umsagnar - Frumvarp til laga um stjórn fiskveiða, 408. mál

Málsnúmer 1202022Vakta málsnúmer

Atvinnuveganefnd Alþingis hefur sent til umsagnar frumvarp til laga um stjórn fiskveiða (þjóðareign á nytjastofnum og nýtingarréttur), 408. mál.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/140/s/0589.html

Lagt fram til kynningar.

14.Til umsagnar - tillaga til þingsályktunar um fjögurra ára fjarskiptaáætlun fyrir árin 2011-2014, 343. mál

Málsnúmer 1202041Vakta málsnúmer

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hefur sent til umsagnar tillögu til þingsályktunar um fjögurra ára fjarskiptaáætlun fyrir árin 2011-2014, 343. mál. Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/140/s/0419.html.

Lagt fram til kynningar.

15.Til umsagnar - tillaga til þingsályktunar um tólf ára fjarskiptaáætlun fyrir árin 2011-2022, 342. mál

Málsnúmer 1202040Vakta málsnúmer

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hefur sent til umsagnar tillögu til þingsályktunar um tólf ára fjarskiptaáætlun fyrir árin 2011-2022, 342. mál.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/140/s/0418.html
 
Lagt fram til kynningar.

16.Breytingar á mælabúnaði í Ólafsfirði

Málsnúmer 1202031Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá Norðurorku hf. dagsett 3. febrúar 2012, þar sem gerð er grein fyrir breytingum sem fyrirtækið ætlar að gera á mælabúnaði hitaveitu í Ólafsfirði á næstu vikum og mánuðum.
Ætlunin er að skipta úr hemlum yfir í mæla hjá stærstu viðskiptavinum Norðurorku.
Til lengri framtíðar er síðan horft til þess að skipt verði úr hemlum yfir í mæla í öllum húsum í Ólafsfirði.

Fundi slitið - kl. 19:00.