Bæjarráð Fjallabyggðar

242. fundur 10. janúar 2012 kl. 12:00 - 14:00 í fundarherbergi í Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Bjarkey Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Egill Rögnvaldsson aðalmaður
  • Þorbjörn Sigurðsson varamaður
  • Sigurður V Ásbjarnarson bæjarstjóri
  • Ólafur Þór Ólafsson skrifstofu- og fjármálastjóri
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson skrifstofu- og fjármálastjóri

1.Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2011/2012

Málsnúmer 1110130Vakta málsnúmer

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur úthlutað Fjallabyggð byggðakvóta fiskveiðiárið 2011/2012. Í bréfi þeirra dags. 21.12.2011 kemur fram að Siglufirði er úthlutað 197 þorskígildistonnum en Ólafsfirði 58 tonnum.

Athygli er vakin á breytingum á nokkrum greinum reglugerðarinnar til byggðarlaga.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að reglur ráðuneytisins verði samþykktar með áorðnum breytingum en þær eru í samræmi og takti við áherslur Fjallabyggðar frá árinu 2010/2011.

2.Beiðni um umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi - Olís, Bylgjubyggð 2 Ólafsfirði

Málsnúmer 1112077Vakta málsnúmer

Sýslumaðurinn á Siglufirði óskar umsagnar um rekstrarleyfi frá Sigurjóni Bjarnasyni f.h. Olíuverslunar Íslands h.f. Um er að ræða rekstrarleyfi á grundvelli 11.gr. laga nr.85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, skv. 1.flokki 4.gr. laganna. Um er að ræða veitingastofu og greiðasölu án áfengisveitinga.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að umrætt leyfi verði veitt og samþykkir opnunartíma til kl. 23.30 alla daga vikunnar.

3.Samningur vegna notkunar á höfundaréttarvörðu efni

Málsnúmer 1112013Vakta málsnúmer

Samningur Fjölís og sveitarfélagsins um notkun á höfundaréttarvörðu efni rann út á árinu. Þar sem Fjölís gætir hagsmuna þeirra félaga sem fara með höfundarrétt vill félagið bjóða sveitarfélaginu framlengingu á óbreyttum samningi til 1. júlí 2012.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að slíkur samningur verði samþykktur og undirritaður af  bæjarstjóra fyrir hönd Fjallabyggðar.

4.Samstarfssamningur um rekstur Almannavarnarnefndar Eyjafjarðar

Málsnúmer 1105081Vakta málsnúmer

Lagður fram undirritaður samstarfssamningur um rekstur Almannavarnarnefndar, en samningurinn var undirritaður 21.desember s.l. og tók gildi frá og með undirritun.

5.Sigurjón Magnússon ehf. - Staða og framtíðarhorfur

Málsnúmer 1111025Vakta málsnúmer

Bæjarráð óskaði eftir skoðun Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar á rekstri félagsins fyrir áramót til að tryggja áframhaldandi rekstur og þar með atvinnu fyrir starfsmenn þess.

Verkefninu er nú lokið af þeirra hálfu og er nú málið í frekari vinnslu hjá eigendum í samræmi við sameiginlega niðurstöðu á stöðu fyrirtækisins.

Lagt fram til kynningar.

6.Launayfirlit janúar - desember 2011

Málsnúmer 1201013Vakta málsnúmer

Skrifstofu- og fjármálastjóri lagði fram launayfirlit fyrir árið 2011. Gerði hann grein fyrir helstu frávikum frá áætlun ársins.
Niðurstaða launayfirlits er 101.5% eða um 12.7 m.kr. umfram áætlun.

7.Smábátahafnir og baðstrendur á Íslandi - Könnun vegna Bláfánans

Málsnúmer 1201007Vakta málsnúmer

Bláfánaverkefnið hófst á árinu 2003 og hafa nú sex staðir flaggað fánanum hingað til og er frestur til að sækja um Bláfánann fyrir árið 2012 til 25. febrúar n.k.  
Fáninn er til marks um aukna umhverfisvitund og þar með kröfu um vistvæna starfshætti.

 

Bæjarráð vísar umræddri könnun sem er á vegum Landverndar til afgreiðslu hafnarstjórnar.

8.Reitir - Alþjóðlegt samstarfsverkefni skapandi fólks á Siglufirði

Málsnúmer 1201006Vakta málsnúmer

Arnar Ómarsson, listamaður boðaði til fundar 28. desember sl. og á fundinn mætti f.h. bæjarfélagsins umhverfisfulltrúi Fjallabyggðar. Ætlunin er að standa fyrir alþjóðlegu samsarfsverkefni skapandi fólks á Siglufirði næsta sumar.

Ætlunin er að þetta verkefni verði árlegt og muni þróast í samráði við bæjarbúa og bæjaryfirvöld.

 

Bæjarráð fagnar hugmyndinni og er umhverfisfulltrúa falið að halda utan um verkefnið fyrir bæjarfélagið. Fjárstuðningur sveitarfélagsins við verkefnið verður óverulegur.

9.Vatnsýni í Fjallabyggð 2011

Málsnúmer 1201010Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar niðurstöður á efnagreiningu á neysluvatnssýnum skv. heildarúttekt reglugerðar nr. 536/2001 og voru sýnin send til ALS Scandinavia AB í Svíðjóð til mælinga.

 

Niðurstaðan liggur nú fyrir og staðfest að vatnið í Ólafsfirði og á Siglufirði stenst gæðakröfur skv. reglugerð nr. 536/2001.

10.Fundargerð Heilbrigðisnefndar Norðurlands vestra frá 15.12.2011

Málsnúmer 1201003Vakta málsnúmer

Fundargerð lögð fram til kynningar.

Í fundargerðinni kemur fram að Norlandia í Ólafsfirði hefur fengið starfsleyfi til bráðabirgða til 1.06.2012.
Lögð er áhersla á að fyrirtækið skili inn greinargerð fyrir 2.05.2012 um virkni nýs hreinsibúnaðar og aðrar aðgerðir til að stemma við lyktarmengun eins og það er orðað í bókun nefndarinnar.

11.Fundargerð 792. fundar Sambands íslenskra sveitarfélaga

Málsnúmer 1112074Vakta málsnúmer

Fundargerð lögð fram til kynningar.

12.Sterkari stjórnsýsla - nám fyrir stjórnendur í sveitarfélögum

Málsnúmer 1201015Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

13.Átak í afþreyingar- og umhverfismálum í Siglufirði

Málsnúmer 1106092Vakta málsnúmer

Egill Rögnvaldsson vék af fundi við umfjöllun þessa dagskrárliðar.
Bæjarráð telur brýnt að viðræðum og samningum milli aðila verði lokið sem fyrst með heildstæðum samningi sbr. erindi Rauðku ehf. og tengdra aðila frá 21. júní 2011.

Að öðru leyti vísar bæjarráð til fyrri bókana í skipulags- og umhverfisnefnd sem og í bæjarráði og er lögð áhersla á bókun frá 28. júní 2011.

Rétt er einnig að minna á áherslur og afgreiðslu bæjarstjórnar við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2012-2015.

Fundi slitið - kl. 14:00.