Beiðni um umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi - Olís, Bylgjubyggð 2 Ólafsfirði

Málsnúmer 1112077

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 242. fundur - 10.01.2012

Sýslumaðurinn á Siglufirði óskar umsagnar um rekstrarleyfi frá Sigurjóni Bjarnasyni f.h. Olíuverslunar Íslands h.f. Um er að ræða rekstrarleyfi á grundvelli 11.gr. laga nr.85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, skv. 1.flokki 4.gr. laganna. Um er að ræða veitingastofu og greiðasölu án áfengisveitinga.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að umrætt leyfi verði veitt og samþykkir opnunartíma til kl. 23.30 alla daga vikunnar.