Bæjarráð Fjallabyggðar

241. fundur 20. desember 2011 kl. 16:00 - 19:00 í ráðhúsinu á Siglufirði
Nefndarmenn
  • Ólafur Helgi Marteinsson formaður
  • Bjarkey Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Sigurður V Ásbjarnarson bæjarstjóri
  • Sólrún Júlíusdóttir
Fundargerð ritaði: Sigurður Valur Ásbjarnarson bæjarstjóri

1.Almenningssamgöngur á vegum Eyþings

Málsnúmer 1112060Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri, sem jafnframt er formaður nefndar á vegum Eyþings, lagði fram upplýsingar um stöðu mála og niðurstöður stjórnar Eyþings er varðar verkefnið.

Lögð voru fram eftirtalin gögn.

1. Frá VSÓ um framtíðartækifæri almenningssamgangna á svæði Eyþings.

2. Samningur um kostnaðarskiptingu vegna rekstrar almenningssamgangna milli Reykjavíkur og Akureyrar.

3. Minnisblað frá VSÓ frá 09.12.2011.

4. Samningur aðildarsveitarfélaga Eyþings um kostnaðarskiptingu vegna samgangna.

Á fundi Eyþings föstudaginn 16.12.2011 var samþykkt tillaga bæjarstjóra Fjallabyggðar um að Eyþing tæki við verkefninu frá og með næstu áramótum af Vegagerð ríkisins.

Sú tillaga var samþykkt einróma.

Gert er ráð fyrir að samræma allt áætlunarkerfið á Norðurlandi þannig, að t.d. verða ferðir frá Siglufirði þrisvar á dag alla daga vikunnar og ein á sunnudögum.

Það er markmið undirbúningsnefndar að vinna hratt í málinu eftir áramótin, þannig að ný áætlun geti tekið sem fyrst gildi á nýju ári.

Lagt fram til kynningar og er bæjarstjóra veitt umboð til að ljúka málinu f.h. Fjallabyggðar.

2.Beiðni um umsögn vegna umsóknar um lengdan opnunartíma - Allinn ehf

Málsnúmer 1112059Vakta málsnúmer

Sýslumaðurinn á Siglufirði óskar eftir umsögn bæjarráðs er varðar lengdan opnunartíma á skemmtistaðnum Allanum á Siglufirði, aðfararnótt 27. desember, vegna dansleiks til kl. 03.00 í staðinn fyrir 01.00 á virkum dögum. Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að staðurinn verði opinn til kl. 03.00 þennan umrædda dag, enda hafi lögreglan ekkert við það að athuga.

Samþykkt samhljóða.

3.Samþykkt um kattahald

Málsnúmer 0810130Vakta málsnúmer

Tæknideild bæjarfélagsins hefur nú yfirfarið og lagt fyrir bæjarráð samþykktir fyrir kattahald í Fjallabyggð. Reglurnar voru samþykktar í umhverfis - og skipulagsnefnd 15.12.2011.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykktin verði staðfest og taki gildi frá og með 1. febrúar 2012.

Samþykkt samhljóða.

4.Gjaldskrá fyrir kattahald í Fjallabyggð

Málsnúmer 1112001Vakta málsnúmer

Tæknideild bæjarfélagsins hefur nú yfirfarið og lagt fyrir bæjarráð gjaldskrá vegna kattahalds í Fjallabyggð. Gjaldskráin var samþykkt í umhverfis - og skipulagsnenfnd 15.12.2011.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að gjaldskráin taki gildi frá og með 1. febrúar 2012.

Samþykkt samhljóða.

5.Samþykkt um hundahald í Fjallabyggð - endurskoðuð

Málsnúmer 1112039Vakta málsnúmer

Tæknideild bæjarfélagsins hefur nú yfirfarið og lagt fyrir bæjarráð samþykkt fyrir hundahald í Fjallabyggð. 

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykktin taki gildi frá og með 1. febrúar 2012.

Samþykkt samhljóða.

6.Gjaldskrá fyrir hundahald í Fjallabyggð - endurskoðuð

Málsnúmer 1112040Vakta málsnúmer

Tæknideild bæjarfélagsins hefur nú yfirfarið og lagt fyrir bæjarráð gjaldskrá fyrir hundahald í Fjallabyggð. Gjaldskráin var samþykkt í umhverfis - og skipulagsnefnd 15.12.2011.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að gjaldskráin taki gildi frá og með 1. febrúar 2012.

Samþykkt samhljóða.

7.Samstarfssamningur um rekstur Almannavarnarnefndar Eyjafjarðar

Málsnúmer 1105081Vakta málsnúmer

Lagður fram til samþykktar nýr samningur um rekstur Almannavarnarnefndar Eyjafjarðar, en ætlunin er að skrifa undir samninginn á morgun miðvikudaginn 21.12.2011 á Akureyti kl. 15.00. Bæjarráð felur skrifstofu-og fjármálastjóra að undirrita samninginn í fjarveru bæjarstjóra.


Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að í almannavarnarnefnd verði skipaður
aðalmaður Þorsteinn Jóhannesson og varamaður hans Tómas Einarsson.


Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að í vettvangsstjórn fyrir Fjallabyggð verði skipaðir

1. Ámundi Gunnarsson og varamaður hans Ingvar Erlingsson

2. Ómar Geirsson og varamaður hans Elín Arnardóttir

3. Grétar Björnsson og varamaður hans Björg Traustadóttir

4. Þormóður Sigurðsson og varamaður hans Gunnar Ásgrímsson

5. Gestur Hansson og varamaður hans Einar Áki Valsson

 

Vettvangsstjórar

1. Kristján Hauksson, Ólafsfirði

2. Ingvar Erlingsson, Siglufirði

3. Ármann Viðar Sigurðsson, Fjallabyggð

 

Samþykkt samhljóða.

 

8.Ályktun gegn niðurskurði í tónlistarskólum

Málsnúmer 1112034Vakta málsnúmer

Ályktun gegn niðurskurði í tónlistarkólum sem var samþykkt á aðalfundi Félags tónlistarskólakennara 12. nóvember sl.

Lögð fram til kynningar.

9.Trúnaðarmál

10.Áætlun um úthlutun aukaframlags úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga 2011

Málsnúmer 1112057Vakta málsnúmer

Lagðar fram upplýsingar um aukaframlag úr Jöfnunarsjóði og vakin er athygli á ákvæði í 3.mgr. 1. gr. reglnanna sem kveður á nauðsyn þess að fyrir 23. desember beri að skila ráðuneytinu greinargerð um ráðstöfun framlagsins.

11.Athugasemdir vegna skóla- og frístundaaksturs veturinn 2011-2012

Málsnúmer 1112047Vakta málsnúmer

Farið yfir akstur um jól og áramót og áherslu í akstri fram til vorsins.

12.Menntaskólinn á Tröllaskaga - Samningur við Akureyrarbæ

Málsnúmer 1112061Vakta málsnúmer

Upplýsingar lagðar fram til kynningar.

13.Fundagerðir stjórnar Hornbrekku frá 18. október og 23. nóvember 2011

Málsnúmer 1112053Vakta málsnúmer

Fundagerðir lagðar fram til kynningar.

14.Samningur um uppbyggingu á aðstöðu til ástundunar hestamennsku í Ólafsfirði

Málsnúmer 1112051Vakta málsnúmer

Staða mála yfirfarin og áherslur skýrðar.

Fundi slitið - kl. 19:00.