Bæjarráð Fjallabyggðar

234. fundur 01. nóvember 2011 kl. 17:00 - 19:00 í fundarherbergi í Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Ólafur Helgi Marteinsson formaður
  • Bjarkey Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Egill Rögnvaldsson aðalmaður
  • Sigurður V Ásbjarnarson bæjarstjóri
  • Ólafur Þór Ólafsson skrifstofu- og fjármálastjóri
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson skrifstofu- og fjármálastjóri

1.Árbók Ólafsfjarðar 2010 - umsókn um styrk

Málsnúmer 1110124Vakta málsnúmer

Hannes Garðarsson sækir um styrk til útgáfu á bók sinni Árbók Ólafsfjarðar.

Um er að ræða útgáfu á bókinni sem tekur á viðburðum ársins 2010.

Bæjarráð vísar erindinu til menningarnefndar.

Bæjarfélagið styrkti útgáfuna um kr. 200 þúsund á síðasta ári.

2.Bylgjubyggð 57 Ólafsfirði - söluheimild

Málsnúmer 1110127Vakta málsnúmer

Óskað er eftir heimild til að setja umrædda húseign á sölu með möguleika á skammtímaleigu á meðan á söluferli stendur.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að Bylgjubyggð 57 fari í sölumeðferð.

3.Húsnæði Aladíns við Ægisgötu 15

Málsnúmer 1110090Vakta málsnúmer

Frístundanefnd beinir þeim tilmælum til bæjarráðs hvort hagkvæmt sé að leysa til sín umrædda eign með þvi að yfirtaka skuldir félagsins.

Bæjarráð telur rétt að kalla eftir skoðun hluthafa og/eða stjórnar Aladíns.

4.Ósk um styrk vegna sérhannaðra söngpalla

Málsnúmer 1110135Vakta málsnúmer

Kirkjukór Ólafsfjarðarkirkju óskar eftir styrk til kaupa á sérhönnuðum söngpöllum sem munu m.a. nýtast öðrum kórum.

Bæjarráð vísar erindinu til menningarnefndar Fjallabyggðar.

5.Refa og minkaveiði

Málsnúmer 1110126Vakta málsnúmer

Deildarstjóri tæknideildar leggur til að greiðslur fyrir refa- og minkaveiði einskorðist við refaskyttur sem gert hafa samning þess efnis við Fjallabyggð.

Bæjarráð samþykkir tillögu deildarstjóra og vísar henni til gerðar fjárhagsáætlunar fyrir árið 2012.

6.Reglur um tilnefningu bæjarlistamanns

Málsnúmer 0912038Vakta málsnúmer

Menningarnefnd hefur farið yfir reglur um tilnefningu bæjarlistamanns Fjallabyggðar og gert smávægilegar breytingar.

Bæjarráð samþykkir reglurnar með áorðnum breytingum.

7.Siðareglur kjörinna bæjarfulltrúa og stjórnenda hjá Fjallabyggð

Málsnúmer 1109010Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn tók málið til umfjöllunar þann 14. september s.l. og var þar samþykkt að taka tvær umræður um framlagðar siðareglur.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að nýjar reglur verði samþykktar.

8.Skólaþing sveitarfélaga 2011

Málsnúmer 1110112Vakta málsnúmer

Skólaþing verður haldið á Hilton Hóteli í Reykjavík föstudaginn 4. nóvember n.k.

Fulltrúar Fjallabyggðar á ráðstefnunni verða leikskólastjóri og fræðslu- og menningarfulltrúi.

9.Styrktarsjóður EBÍ og fulltrúaráðsfundur EBÍ

Málsnúmer 1107046Vakta málsnúmer

Aðalfundur fulltrúaráðs Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands sem haldinn var 12. október sl. samþykkti tillögu um ágóðahlutagreiðslur til aðildarsveitarfélaganna einróma.

Um er að ræða óbreytt markmið EBÍ, að hluti af hagnaði af starfsemi félagsins skuli árlega greiddur til aðildarsveitarfélaga með þeirri undantekningu að ekki komi til útgreðslna á árinu 2011.

Lagt fram til kynningar.

10.Tilnefning fulltrúa í vatnasvæðanefnd

Málsnúmer 1110117Vakta málsnúmer

Umhverfisstofnun sendir inn erindi þar sem óskað er eftir tilnefningu í vatnasvæðanefnd fyrir 1. desember næstkomandi.

Bæjarráð samþykkir að skipa Ármann Viðar Sigurðsson deildarstjóra tæknideildar fulltrúa Fjallabyggðar í umrædda nefnd.

11.Fjárhagsáætlun 2012

Málsnúmer 1109161Vakta málsnúmer

Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu um útgjaldaramma fyrir bæjarfélagið. Bæjarráð vísar tillögunum til fagnefnda, forstöðumanna og deildarstjóra til frekari úrvinnslu.

12.Ársfundur Umhverfisstofnunar og Náttúruverndarnefnda árið 2011

Málsnúmer 1110118Vakta málsnúmer

Ársfundur Umhverfisstofnunar og Náttúruverndarnefnda sveitarfélaga var haldinn 27. október s.l.

Lagt fram til kynningar.

13.Vestnorden Foresight 2030 - framtíðarsýn byggðarlaga

Málsnúmer 1105029Vakta málsnúmer

Norræn ráðstefna var haldin í Reykholti 27. -28. október s.l. Um er að ræða lokafund um þróunarverkefnið Vestnorden Foresight 2030, sem staðið hefur yfir síðan 2010.

Undirbúningsfundir þessa verkefnis voru haldnir í Borgarbyggð og Fjallabyggð en vinnufundir verkefnisins voru á Akureyri og í Reykholti.

Fulltrúar Fjallabyggðar voru Ásgeir Logi Ásgeirsson og Magnús Sveinsson.

14.Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2011/2012

Málsnúmer 1110130Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti dags. 26. október 2011, en um er að ræða auglýsingu um umsókn um byggðakvóta fiskveiðiársins 2011/2012.

Bæjarráð samþykkir að sveitarfélagið sæki um byggðakvóta fiskveiðiársins 2011/2012 fyrir 9. nóvember 2011.

15.Upplýsingar um stöðu mála hjá Fiskey hf.

Málsnúmer 1109059Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 19:00.