Bæjarráð Fjallabyggðar

685. fundur 23. febrúar 2021 kl. 08:15 - 09:00 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Helga Helgadóttir formaður, D lista
  • Nanna Árnadóttir aðalmaður, I lista
  • Jón Valgeir Baldursson aðalmaður, H lista
Starfsmenn
  • Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu- og fjármála
  • Elías Pétursson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu- og fjármála

1.Trúnaðarmál

Málsnúmer 2101031Vakta málsnúmer

Niðurstaða bæjarráðs færð í trúnaðarbók.

2.Styrkumsóknir 2021 - Fasteignaskattur félaga og félagasamtaka

Málsnúmer 2009072Vakta málsnúmer

Lagðar fram umsóknir félagasamtaka um styrki vegna fasteignaskatts á árinu 2021.

Bæjarráð samþykkir að veita umsækjendum styrki vegna fasteignaskatts á árinu 2021 samtals kr. 3.540.854.-

3.Launastefna Fjallabyggðar

Málsnúmer 2102056Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að launastefnu Fjallabyggðar.

Bæjarráð samþykkir drögin fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar í bæjarstjórn.

4.Ólafsvegur 34 - íbúð 302

Málsnúmer 1907005Vakta málsnúmer

Lagt fram undirritað kauptilboð, dags. 18.02.2021 í íbúð 302 að Ólafsvegi 34.

Bæjarráð samþykkir kauptilboðið og felur deildarstjóra stjórnsýslu- og fjármála að ganga frá sölu íbúðarinnar.

5.Beiðni frá Skógræktarfélagi Ólafsfjarðar

Málsnúmer 2006028Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að samningi milli Fjallabyggðar og Skógræktarfélags Ólafsfjarðar um skógrækt og uppbyggingu útivistarsvæða í umsjón skógræktarfélagsins.

Bæjarráð samþykkir drögin fyrir sitt leyti og felur deildarstjóra tæknideildar að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins.

Bæjarráð samþykkir að setja í viðauka nr.4/2021 kr. 200.000, við málaflokk 11310 og lykill 9291 og verður honum mætt með lækkun á handbæru fé og vísar honum til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarstjórnar.

6.Samningur um rekstur skíðasvæðis í Tindaöxl 2021

Málsnúmer 2010140Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að samningi við Skíðafélag Ólafsfjarðar um rekstur skíðamannvirkja í eigu Fjallabyggðar í Ólafsfirði fyrir árið 2021.

Bæjarráð samþykkir drögin og felur deildarstjóra fræðslu-, frístunda og menningarmála að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins.

7.Gamlir safngripir - Hlíð

Málsnúmer 2102050Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Svanfríðar Halldórsdóttur og Gunnars L. Jóhannssonar, dags. 15.02.2020 er varðar varðveislu safnmuna er snerta sögu Ólafsfjarðar.

Bæjarráð samþykkir að fela deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála að vinna málið áfram með tilliti til þess hvort hægt sé að varðveita umrædda safnmuni hjá sveitarfélaginu.

8.Siglufjörður - Mat á öldufari við niðurbrot á Siglunesi

Málsnúmer 2102049Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar skýrsla Vegagerðarinnar, Siglufjörður - mat á öldufari við niðurbrot á Siglunesi.

Bæjarráð samþykkir að vísa skýrslunni til umfjöllunar í skipulags- og umhverfisnefnd.

9.Umferðarþing - 19. nóvember 2021

Málsnúmer 2102058Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi Samgöngustofu, dags. 17.03.2021 þar sem fram kemur að umferðarþingi hefur verið frestað til 19. nóvember nk. Þingið verður haldið á Hilton Reykjavík Nordica frá kl. 9-16. Áherslan verður á ungt fólk í umferðinni (15-20 ára), forvarnir og fræðslu sem stuðla að bættu umferðaröryggi. Samhliða umferðarþingi verður haldin vinnusmiðja ungs fólksins í samvinnu við Slysavarnafélagið Landsbjörgu auk þess sem haldin verður minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa sunnudaginn 21. nóvember 2021.

10.Drög að stefnu um meðhöndlun úrgangs 2021-2032

Málsnúmer 2102060Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 18. 02.2021 er varðar drög að umsögn sambandsins um drög að stefnu um meðhöndlun úrgangs 2021-2032. Sveitastjórnir og aðrir viðtakendur eru hvattir til að kynna sér málið. Frestur til að skila inn umsögnum er til 23. febrúar nk.

11.Frá nefndasviði Alþingis - Mál til umsagnar 2021

Málsnúmer 2101022Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi Allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis, dags. 18.02.2021 er varðar umsögn um frumvarp til laga um áfengislög (sala á framleiðslustað), 504. mál.

12.Starfs- og kjaranefnd Fjallabyggðar - Fundargerðir 2021

Málsnúmer 2102057Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð starfs- og kjaranefndar frá 01.02.2021.

13.Fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar - 2021

Málsnúmer 2101002Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 129. fundar Félagsmálanefndar Fjallabyggðar frá 12. febrúar sl.

Fundi slitið - kl. 09:00.