Bæjarráð Fjallabyggðar

938. fundur 29. október 2026 kl. 08:45 - 10:45 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Helgi Jóhannsson formaður
  • Jóhann K. Jóhannsson varaformaður
  • Tómas Atli Einarsson aðalfulltrúi
Starfsmenn
  • Hafdís Huld Björnsdóttir bæjarstjóri
  • Þórir Hákonarson skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson skrifstofustjóri

1.Tilboð í ræstingu í TÁT á Siglufirði

Málsnúmer 2610019Vakta málsnúmer

Fyrir liggur vinnuskjal sviðsstjóra velferðarsviðs um tilboð í ræstingu skólahúsnæðis tónlistarskólans á Siglufirði. Tvö tilboð bárust í ræstinguna til næstu þriggja ára:
Spikk & Span kr. 7.793.565
Guðrún B Elínardóttir kr. 6.900.000

Sviðsstjóri leggur til, með hliðsjón af niðurstöðu verðkönnunar, að gengið verði til samninga við Guðrúnu Björgu Elínardóttur, enda uppfyllir tilboð hennar skilyrði verðkönnunarinnar.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir tillögu sviðsstjóra velferðarsviðs og felur bæjarstjóra/sviðsstjóra að ganga frá samningi við Guðrúnu B Elínardóttur / Rise and shine ehf.

2.Samningur um rekstur knattspyrnuvalla í Fjallabyggð 2025 og 2026

Málsnúmer 2504017Vakta málsnúmer

Fyrir liggur vinnuskjal frá Fjallgörðum um umhirðu knattspyrnusvæða í Ólafsfirði fyrir árin 2025 og 2026 auk hugmynda um áframhaldandi uppbyggingu svæðisins til næstu ára. Fjallgarðar og KF hafa sýnt því áhuga að sjá um rekstur knattspyrnusvæðisins í Ólafsfirði.
Afgreiðslu frestað
Bæjarráð þakkar Fjallgörðum ehf. fyrir góða yfirferð yfir þær framkvæmdir sem farið hefur verið í til að byggja upp grasvöllinn í Ólafsfirði s.l. tvö ár og einnig fyrir hugmyndir af frekari uppbyggingu svæðisins og tækjabúnaðar. Bæjarstjóra falið að ræða við KF varðandi þeirra framtíðarsýn um rekstur vallarins.
Afgreiðslu frestað

3.Tjaldsvæði Fjallabyggðar 2025-2027

Málsnúmer 2502042Vakta málsnúmer

Fyrir liggur beiðni frá rekstraraðila tjaldsvæðisins í Ólafsfirði um niðurfellingu á 10% þóknun af innkomu tjaldsvæðis til Fjallabyggðar árið 2026 vegna framkvæmda sem voru á svæðinu og höfðu veruleg áhrif á gestakomur í sumar.
Samþykkt
Bæjarráð þakkar rekstraraðila tjaldsvæðisins í Ólafsfirði fyrir erindið. Það er ljóst að nauðsynlegar framkvæmdir á svæðinu í sumar höfðu töluverð áhrif á nýtingu þess. Reiknað var með að framkvæmdum væri lokið í lok júní en síðan var ákveðið að fara í frekari framkvæmdir sem seinkuðu verklokum töluvert. Bæjarráð vill því koma til móts við rekstraraðila tjaldsvæðisins og gefa eftir 10% þóknun þessa árs til Fjallabyggðar.

4.Ósk um stuðning við starfsemi Samtaka um karlaathvarf

Málsnúmer 2610060Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Samtökum um karlaathvarf þar sem óskað er eftir fjárhagslegum stuðningi við nýjan hjálparsíma samtakanna og þá aðstoð sem samtökin veita körlum við erfiðar aðstæður.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð tekur vel í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.

5.Ósk um tilnefningu í notendaráð fatlaðs fólks frá hagsmunasamtökum

Málsnúmer 2610072Vakta málsnúmer

Í samræmi við erindisbréf notendaráðs fatlaðs fólks í Fjallabyggð liggur fyrir að leita skal tilnefninga frá hagsmunasamtökum fatlaðs fólks í notendaráðið.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð felur velferðarsviði að óska eftir tilnefningum í notendaráðið.

6.Ábendingar og tillögur íbúa vegna fjárhagsáætlunar 2027

Málsnúmer 2610003Vakta málsnúmer

Fyrir liggur samantekt á ábendingum og tillögum íbúa vegna gerðar fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027.
Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar
Bæjarráð þakkar fyrir þær fjölmörgu ábendingar sem bárust frá íbúum og sýndan áhuga á málefnum sveitarfélagsins. Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar.

7.Viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga

Málsnúmer 2610073Vakta málsnúmer

Innviðaráðuneytið hefur birt tillögur um viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Í tillögunum eru sett fram 30 mælikvarðar og skilgreind viðmið sem gefa til kynna hvort sveitarfélög hafi nauðsynlegar forsendur til að þróast með sjálfbærum hætti til lengri tíma. Vonir standa til að viðmiðin og mælaborðið nýtist sem leiðsögn og tæki fyrir gagnadrifna stefnumótun og ákvarðanatöku fyrir sveitarfélög til langs tíma.
Frestur er til 13.nóvember n.k. til þess að skila inn umsögnum.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

8.Sveitarfélag ársins 2026

Málsnúmer 2603045Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 30.mars s.l. að taka þátt í könnuninni "Sveitarfélag ársins 2026" og liggja niðurstöður nú fyrir.
Lagt fram til kynningar
Bæjarráð vísar niðurstöðum könnunarinnar til frekari kynningar í viðkomandi stofnunum og stjórnsýslunni.

9.Stofnun félagasamtaka um björgun Kristnesspítala

Málsnúmer 2610071Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tilkynning um stofnun félagasamtakanna Björgum Kristnesspítala en stofnunin fer fram 1. nóvember n.k.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar.

10.Rýnigögn - Óveður á Siglufirði 14. okt 2026

Málsnúmer 2610090Vakta málsnúmer

Fyrir liggja gögn úr rýnifundi með viðbragðsaðilum sem haldinn var í kjölfar óveðurs á Siglufirði þann 14.október s.l.
Lagt fram til kynningar
Bæjarráð þakkar viðbragðsaðilum fyrir þeirra mikilvæga starf í óveðrinu 14. október s.l.

11.Fundargerðir Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) - 2026

Málsnúmer 2601004Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundargerð SSNE frá 87.fundi.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

12.Fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar - 2026

Málsnúmer 2601001Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar 337. fundur skipulags- og umhverfisnefndar.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 10:45.