Viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga

Málsnúmer 2610073

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 938. fundur - 29.10.2026

Innviðaráðuneytið hefur birt tillögur um viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Í tillögunum eru sett fram 30 mælikvarðar og skilgreind viðmið sem gefa til kynna hvort sveitarfélög hafi nauðsynlegar forsendur til að þróast með sjálfbærum hætti til lengri tíma. Vonir standa til að viðmiðin og mælaborðið nýtist sem leiðsögn og tæki fyrir gagnadrifna stefnumótun og ákvarðanatöku fyrir sveitarfélög til langs tíma.
Frestur er til 13.nóvember n.k. til þess að skila inn umsögnum.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar