Erindi frá launþegasamtökum

Málsnúmer 2609036

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 933. fundur - 17.09.2026

Fyrir liggur erindi frá formönnum VR, Landssambandi íslenzkra verzlunarmanna og Rafiðnaðarsambandsins f.h. fagfélaganna þar sem óskað er upplýsinga um hvað sveitarfélagið Fjallabyggð er tilbúið að leggja af mörkum til að ná verðbólgu og vöxtum niður.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð þakkar fyrir erindið frá launþegasamtökunum og felur bæjarstjóra að svara erindinu og má m.a. vísa í 3. lið hér að ofan í svari til þeirra.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 934. fundur - 24.09.2026

Fyrir liggur erindi frá formanni Starfsgreinasambands Íslands þar sem óskað er upplýsinga um hvað sveitarfélagið Fjallabyggð er tilbúið að leggja af mörkum til að ná verðbólgu og vöxtum niður og hvort sveitarfélagið sé reiðubúið að taka þátt í þjóðarsátt um verðstöðuleika þannig að gjaldskrár hækki en ekki sem nemur 2,5% það sem eftir lifir gildandi kjarasamninga.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Sveitarfélagið Fjallabyggð tekur áskorun Starfsgreinasambandssins um þjóðarsátt um verðstöðuleika. Bæjarstjórn Fjallabyggðar hefur þegar samþykkt að gjaldskrá fyrir árið 2027 hækki um 2,5% sem er sama og farið er fram á í áskorun SGS.
Bæjarstjóra falið að svara erindinu til framkvæmdastjóra Starfsgreinasambands Íslands.