Endurhæfum Reykjalund; Ákall um stuðning

Málsnúmer 2609051

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 934. fundur - 24.09.2026

Fyrir liggur erindi frá Hollvinasamtökum Reykjalundar þar sem leitað er til sveitarfélaga í landinu um að taka virkan þátt í uppbyggingu Reykjalunds með fjárframlagi.
Samþykkt
Bæjarráð þakkar Hollvinasamtökum Reykjalundar fyrir erindið. Föstudaginn 2. október 2026 standa samtökin ásamt RÚV fyrir landssöfnun fyrir brýnni uppbyggingu húsakosts Reykjalundar.
Bæjarráð samþykkir að styrkja söfnunina um kr. 100.000, því við teljum að Reykjalundur sé mikilvægur hlekkur í heilbrigðisþjónustu landsins. Bæjarráð hvetur fyrirtæki og einstaklinga til að taka þátt í átakinu.