Síldarævintýrið 2026

Málsnúmer 2605025

Vakta málsnúmer

Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar - 124. fundur - 12.05.2026

Fyrir liggur vinnuskjal frá stýrihópi um framkvæmd Síldarævintýris 2026 og fundi bæjarstjóra með fulltrúa hópsins.
Lagt fram til kynningar
Nefndin þakkar stýrihópi fyrir vinnuskjalið og telur mikilvægt að tekin verði umræða á vettvangi bæjarstjórnar Fjallabyggðar um hvert skipulag Síldarævintýris á að vera til lengri tíma.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 925. fundur - 09.07.2026

Fyrir liggur erindi frá stýrihóp um Síldarævintýrið varðandi götulokanir, afnot af húsnæði og ýmsum búnaði Fjallabyggðar, leyfi til að halda flugeldasýningu og brennu og fleira.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir lokun Vetrarbrautar frá Aðalgötu að Eyrargötu frá klukkan 17:30, fimmtudaginn 30.júlí, til mánudagsmorguns 3. ágúst.
Bæjarráð samþykkir einnig lokun Aðalgötu við Túngötu að Grundargötu og Lækjargötu frá Aðalgötu að Gránugötu frá hádegi föstudagsins 31. júlí til mánudagsmorguns 3. ágúst. Heimilt verði að loka ofangreindum götum í miðbænum fyrr á fimmtudeginum vegna uppsetningar á sviði, gerist þess þörf. Forsvarsmenn hátíðarinnar setji sig í samband við viðbragðsaðila og kynni fyrir þeim lokanirnar.
Bæjarráð heimilar staðsetningu á Hopplandi á Ingvarsbryggju að vestanverðu.
Bæjarráð fyrir sitt leyti gefur leyfi fyrir að spila lifandi tónlist til miðnættis í miðbænum, leyfi fyrir flugeldasýningu föstudagskvöldið 31. júlí, brennu á Norðurtanga á laugardagskvöldið og skrúðgöngu frá miðbænum að Norðurtanga.
Jafnframt samþykkir bæjarráð opnun á íþróttahúsinu á Siglufirði eftir þörfum ef veðuraðstæður eru slæmar og frían aðgang að sundlauginni í Ólafsfirði fyrir börn og unglinga til og með 18 ára aldri á laugardag.
Það sem snýr að tjaldsvæðum skal hafa samband við rekstraraðilann Evanger.
Hvað önnur atriði varðar í beiðninni þá felur bæjarráð bæjarstjóra og tæknideild að vera í sambandi við forsvarsmenn hópsins varðandi þau.