Bæjarráð Fjallabyggðar

921. fundur 11. júní 2026 kl. 08:15 - 10:15 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Helgi Jóhannsson formaður
  • Jóhann K. Jóhannsson varaformaður
  • Tómas Atli Einarsson aðalfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson bæjarstjóri

1.Framkvæmdir og viðhald 2026

Málsnúmer 2601055Vakta málsnúmer

Á fundinn mætti sviðsstjóri skipulags - og framkvæmdasviðs, Gísli Davíð Sævarsson, og greindi hann frá stöðu varðandi framkvæmdir og viðhaldsverkefni sem fyrirhuguð eru á árinu í samræmi við fjárhagsáætlun er samþykkt er fyrir árið 2026.
Samþykkt
Sviðstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs er þakkað fyrir greinargóðar skýringar á framkvæmda- og viðhaldsáætlun sveitarfélagsins.

2.Trúnaðarmál - starfsmannamál

Málsnúmer 2605060Vakta málsnúmer

Með afgreiðslu vísast til trúnaðarbókar

3.Knatthús í Fjallabyggð

Málsnúmer 2508022Vakta málsnúmer

Fyrir liggur niðurstaða úr útboði vegna framkvæmda við knatthús í Ólafsfirði.
Aðeins tvö tilboð bárust í verkið þrátt fyrir að mun fleiri hafi fengið útboðsgögn og voru þau tilboð opnuð s.l. föstudag. Niðurstaða var þessi:

Kostnaðaráætlun kr. 401.300.000
Atlas kr. 649.814.564
K16 kr. 1.049.624.492

Lægra tilboð er því 162% af kostnaðaráætlun.
Afgreiðslu frestað
Bæjarráð þakkar fyrir framkomin tilboð í uppbyggingu knatthúss í Fjallabyggð. Jafnframt lýsir bæjarráð yfir vonbrigðum yfir því hversu há tilboðin voru yfir kostnaðaráætlun sveitarfélagsins. Fjallabyggð mun í framhaldinu taka sér tíma og skoða málið og ákveða næstu skref. Bæjarstjóra og sviðsstjóra falið að ræða við lægstbjóðanda.

4.Reglur um matarvagna 2026

Málsnúmer 2605005Vakta málsnúmer

Fyrir liggja hugmyndir að reglum fyrir matarvagna á hátíðum í Fjallabyggð.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð telur mikilvægt að til séu reglur sem hægt sé að miða við þegar fyrirspurnir eða beiðnir koma vegna tímabundinnar staðsetningar matar- eða söluvagna á bæjarhátíðum eða viðburðum. Áréttað er að hér er eingöngu verið að ræða um leyfisveitingar á bæjarhátíðum og viðburðum í sveitarfélaginu. Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram og leggja fram tillögu á næsta fund bæjarráðs.

5.Aðalgata 6B framkvæmdaráform

Málsnúmer 2509032Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri greindi frá stöðu mála varðandi lóðina að Aðalgötu 6B á Siglufirði og tilboði frá lóðarhafa um skil á lóðinni.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram með lóðarhafa.

6.Afnot af fjallendi Fjallabyggðar

Málsnúmer 2606022Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Viking Heliskiing þar sem óskað er eftir einkaafnotum af fjalllendi sveitarfélagsins til að stunda þyrluskíðamennsku á tímabilinu 1.mars - 20. júní ár hvert.
Synjað
Bæjarráð þakkar fyrir erindið en sér sér ekki fært að verða við því þar sem aðrir aðilar eru með sambærilega starfsemi og rekstur í Fjallabyggð.

Tómas Atli Einarsson D-lista lagði fram eftirfarandi bókun:
"Fulltrúi D-lista leggur til að Fjallabyggð taki formlegt samtal við rekstraraðila þyrluskíðafyrirtækja sem starfa innan sveitarfélagsins um framtíðarfyrirkomulag starfseminnar.
Mikilvægt er að móta skýra og gagnsæja umgjörð um afnot fjalllendis, öryggi, jafnræði rekstraraðila og samráð áður en lengra er haldið."

7.Fjárhagsáætlun 2026 og þriggja ára áætlun 2027-2029

Málsnúmer 2509018Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri greindi frá rekstrarstöðu í samanburði við fjárhagsáætlun ársins 2026.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

8.Evrópsk Samgönguvika

Málsnúmer 2606002Vakta málsnúmer

Fyrir liggja upplýsingar um evrópska samgönguviku sem áætluð er dagana 16-22.september n.k. þar sem vakin verður athygli á og hvatt til vistvænna samgangna.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

9.Greið leið - hluthafafundur 2026

Málsnúmer 2602046Vakta málsnúmer

Hluthafafundur Greiðrar leiðar var haldinn þriðjudaginn 9.júní s.l.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

10.Sveitarfélagaskólinn

Málsnúmer 2606003Vakta málsnúmer

Fyrir liggja upplýsingar um Sveitarfélagaskólann sem Samband íslenskra sveitarfélaga stendur að.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

11.Breyting á reikningsskilum sveitarfélaga 2026

Málsnúmer 2606012Vakta málsnúmer

Fyrir liggja upplýsingar um breytingar sem verða gerðar á árinu á reikningsskilum sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

12.Fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar - 2026

Málsnúmer 2601001Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundargerð frá 162.fundi fræðslu - og frístundanefndar.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 10:15.