Bæjarráð Fjallabyggðar

920. fundur 05. júní 2026 kl. 08:15 - 10:15 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Helgi Jóhannsson formaður
  • Jóhann K. Jóhannsson varaformaður
  • Tómas Atli Einarsson aðalfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson bæjarstjóri

1.Trúnaðarmál - starfsmannamál

Málsnúmer 2605060Vakta málsnúmer

Með afgreiðslu vísast til trúnaðarbókar

2.Björgunarskipið Sigurvin - Viðlegupláss 2026

Málsnúmer 2605007Vakta málsnúmer

Fyrir liggur kostnaðaráætlun vegna viðlegupláss fyrir Sigurvin í samræmi við bókun framkvæmda-, hafna- og veitunefndar Fjallabyggðar frá 7.maí s.l. Kostnaður rúmast innan framkvæmdaáætlunar ársins fyrir Fjallabyggðarhöfn.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir framlagða kostnaðaráætlun vegna viðlegupláss fyrir björgunarskipið Sigurvin. Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram.

3.Stækkun fráveitu - Primex

Málsnúmer 2410007Vakta málsnúmer

Fyrir liggur kostnaðaráætlun vegna fráveituútrásar við Primex
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð samþykkir framlagða kostnaðaráætlun með fyrirvara. Bæjarstjóra falið að vinna málið og ræða við forsvarsmenn Primex varðandi framhaldið.

4.Endurskoðun á byggðakvótakerfinu

Málsnúmer 2605032Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Innviðaráðuneyti þar sem fram kemur að hafin sé heildarendurskoðun á byggðakvótakerfinu og í því skyni er óskað eftir umsögn sveitarfélaga um áhrif veiðiheimilda byggðakvóta á þau og einstök byggðarlög. Frestur hefur verið gefinn til 15. júní að skila inn umsögn.
Samþykkt
Bæjarstjóra og kjörnum fulltrúum falið að taka samtal við hagsmunaaðila og umsögn sveitarfélagsins unnin í samráði við þá.

5.Skipan stjórnar og þingfulltrúa SSNE

Málsnúmer 2605043Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá SSNE þar sem fram kemur að sveitarstjórnir á Norðurlandi eystra skuli skipa fulltrúa í stjórn samtakanna í upphafi nýs kjörtímabils.
Samþykkt
Bæjarráð leggur til að Jóhann K. Jóhannsson verði fulltrúi Fjallabyggðar í stjórn SSNE.

6.Samningur við Bergið 2026-2029

Málsnúmer 2605047Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að samstarfssamningi sveitarfélaga á Norðurlandi eystra og Bergsins sem veitir stuðnings - og ráðgjafarþjónustu fyrir ungt fólk. Þjónustan felur m.a. í sér mánaðarlega viðveru í Ólafsfirði og aðgengi að fjarþjónustu eftir þörfum. Gert er ráð fyrir árlegu framlagi Fjallabyggðar sem tekur mið af íbúafjölda og er áætlað frá um 320 þúsund til 380 þúsund krónur á ári auk aðstöðu.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir framlagðan samstarfssamning og felur bæjarstjóra að ganga frá undirritun við Bergið. Bæjarráð fagnar aukinni þjónustu við börn og ungmenni í sveitarfélaginu og áréttar að þjónustan verði kynnt og auglýst, í samráði við Bergið, á heimasíðu sveitarfélagsins, í Grunnskóla Fjallabyggðar og Menntaskólanum á Tröllaskaga.

7.Ungmennaþing SSNE 2026

Málsnúmer 2510071Vakta málsnúmer

Fyrir liggur niðurstöðuskýrsla frá Ungmennaþingi SSNE sem fram fór 14.-15.apríl s.l. en skýrslan er unnin af Elvu Gunnlaugsdóttur verkefnastjóra SSNE og Þorleifi Kr. Níelssyni verkefnastjóra Farsældarráðs Norðurlands eystra.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar.

8.Launayfirlit tímabils - 2026

Málsnúmer 2602003Vakta málsnúmer

Með fundarboði bæjarráðs fylgdi yfirlit launakostnaðar fyrir fyrstu fjóra mánuði ársins 2026. Áfallinn launakostnaður er 91,2% af tímabilsáætlun.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar.

9.Fundargerðir Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) - 2026

Málsnúmer 2601004Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundargerð SSNE frá 83.fundi stjórnar.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar.

10.Ársþing SSNE 2026

Málsnúmer 2603003Vakta málsnúmer

Fyrir liggur þinggerð ársþings SSNE sem haldið var þann 26.mars s.l.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 10:15.